Var 150 kíló - sá ljósmynd og fékk nóg Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. nóvember 2011 19:10
Ljósmynd sem tekin var í kvennafélagsferð varð til þess að kona, sem orðin var tæp hundrað og fimmtíu kíló, ákvað að tímabært væri að gera eitthvað í sínum málum. Hún segir of stóra skammta á veitingastöðum vandamál og telur að breyta þurfi hugsunarhættinum í samfélaginu til að sporna við offitu. Við höfum sagt frá því að þrjú hundruð og fimmtíu manns eru á biðlista eftir því að komast í offitumeðferð á Reykjalundi og biðin lengist sífellt. Flestir sem fara í gegnum meðferðina fara síðan í hjáveituaðgerð á Landspítalanum. Andrea Anna komst inn í meðferðina í febrúar 2007. Þremur árum áður sá hún ljósmynd af sér í kvennafélagsferð og ákvað þá að gera eitthvað í sínum málum. „Þá fékk ég áfallið," lýsir Andrea Anna og bætir við: „Ég var orðin 148,9 kíló. Ég var með háan blóðþrýsting sem ég fékk að vísu líka eftir meðgöngu. Ég þyngdist mjög mikið eftir meðgöngu." Hún ákvað í framhaldinu að leita til Trausta Valdimarssonar, meltingafærasérfræðings á Akranesi. Áður en hún hitti hann létti hún sig um nokkur kíló. „Hann sagði bara við mig að ég væri að drepa mig úr offitu. Sem var náttúrulega mikið sjokk. Andrea segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á mat. „Ég hef oft sagt að ég sé kokkur af guðs náð og eldaði bara mjög góðan og mikinn mat. Það var svona mín ástríða og kokkabækur og ýmislegt svoleiðis sem varð til þess að ég fór þangað sem ég fór." Hún segir mikilvægt að breyta hugsunarhættinum í samfélaginu til að sporna við offitu. Þannig sé brauðmeti yfirleitt það fyrsta sem fólk sér þegar það kemur inn búið og sælgæti það síðasta sem fólk sér við kassann. Þá séu oft mjög stórir skammtar í boði á veitingastöðum og ódýrt að stækka máltíðir. Fólk sé oft hissa ef einhver vill ekki stærri skammt eða franskar með. Áður en Andrea fór í hjáveituaðgerð hafði hún losað sig við 47 kíló meðal annars í offitumeðferðinni á Reykjalundi. Hún fór í aðgerðina til að losa sig við 43 kíló sem hún átti eftir til að komast í kjörþynd. Í dag er hún sextíu kíló. „Nú er maður farinn að hreyfa sig meira og fjallgöngur. Ég er búin að klífa Hvannadalshnjúk og er búin að fara Laugarveginn með bakpoka á bakinu. Þannig að það eru hlutir sem ég hefði aldrei getað gert. Þannig að það er allt miklu léttara."
Mest lesið Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Innlent Hitamet slegið á Spáni um helgina Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Erlent Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Innlent Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Innlent Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Innlent Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent Fleiri fréttir Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Sjá meira