Erlent

Hörmulegt ástand í Japan: Að minnsta kosti 1700 látnir

Gríðarlega öflug sprenging varð í kjarnorkuveri í borginni Fukushima í Japan í morgun. Búið er ná til allra íslendinga sem dvelja í landinu. Eyðileggingin á svæðinu er gríðarleg og tala látinna nálgast 1700 manns.

Sprenging í kjarnorkuverinu blasti við heimsbyggðinni í kjarnorkuverinu í Fukushima í morgun þegar starfsmenn unnu að viðgerð eftir að kælikerfi versins varð fyrir skemmdum í skjálftanum í gær. Menn höfðu miklar áhyggjur af kjarnorkuverinu og voru starfsmenn að kæla kjarnaofninn með sjó þegar sprenginging varð.

Talið er að dælukerfi kjarnorkuversins hafi gefið sig, og það ollið sprengingunni sem var nokkuð öflug. Í kjölfarið sluppu út eiturefni og svæði í 20 kílómetra radíus frá verinu var rýmt. Geislun var hinsvegar minni en menn óttuðust og var neyðarástandi aflýst síðdegis.

Íbúar Fukushima voru þó óttaslegnir vegna ástandsins

„Ég held að þetta sé í lagi í augnablikinu en ég er samt hræddur um að geislavirknin hafi nú þegar haft áhrif á okkur," segir íbúi á svæðinu við fjölmiðla.

Ástandið í smábæ á í Miyagi héraðinu sem varð hvað verst úti vegna flóðbylgjunnar sem hefur ollið gríðarlegri eyðilegginu á svæðinu, var hrikalegt. Bílar flutu um götur og litlar verslanir fylltust af sjó.

Eldar hafa kviknað hér og þar í kjölfar skjálftans sem er sá fimmti öflugasti síðustu hundrað árin. Í dag var fórnarlömbum skjálftans komið fyrir á öruggum stöðum og margar fjölskyldur sameinuðust eftir rúmlega 20 klukkustundar aðskilnað. Og þá var fátt annað hægt að gera en að faðma og hugga ástvini sína.

Tala látinna fer sífellt hækkandi en talið er að hún nálgist nú 1700 manns. Tæplega tíu þúsund manns sem voru við höfnina í bænum Mínamísanríku er saknað að sögn fréttaritara á svæðinu.

Sendiráð Íslands í Japan hefur tekist að ná sambandi við alla þá Íslendinga sem vitað erum á svæðinu og eru þeir allir óhultir.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun hans hátign Akihito Japanskeisara samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni í morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×