Byrjar Arnór Sveinn eða Birkir Már í kvöld? Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Kaupmannahöfn skrifar 7. september 2010 12:15 Rúrik Gíslason kemur líklega inn í byrjunarliði á nýjan leik. Mynd/Daníel
Stærsta spurningin fyrir leik Íslands og Danmerkur í kvöld er hvort að Arnór Sveinn Aðalsteinsson eða Birkir Már Sævarsson verði í byrjunarliði íslenska liðsins í stað Grétars Rafns Steinssonar sem er meiddur. Arnór Sveinn kom inn á sem varamaður fyrir Grétar Rafn þegar sá síðarnefndi fór af velli í leik Íslands og Noregs á föstudagskvöldið. Eftir að ljóst varð að Grétar Rafn færi ekki með til Danmerkur var Birkir Már kallaður í landsliðshópinn. En þrátt fyrir það gæti Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tekið þá ákvörðun að velja Birki Má beint í byrjunarliðið í kvöld. Birkir Már, leikmaður Brann í Noregi, hefur oftar spilað með íslenska landsliðinu og mögulegt að Ólafur láti þá staðreynd ráða för í kvöld. Það kom nokkuð í opna skjöldu að Rúrik Gíslason, leikmaður danska úrvalsdeildarfélagsins OB, var ekki í byrjunarliði íslenska landsliðsins á föstudaginn. En líklegt er að hann komi í liðið í kvöld og spili þá á hægri kantinum. Gylfi Þór Sigurðsson, sem lék á hægri kantinum gegn Norðmönnum, fari þá í stöðu sóknartengiliðar og að Veigar Páll Gunnarsson missi þá sæti sitt í liðinu.Líklegt byrjunarlið Íslands í kvöld:Markvörður: Gunnleifur GunnleifssonVarnarmenn: Arnór Sveinn Aðalsteinsson eða Birkir Már Sævarsson Kristján Örn Sigurðsson Sölvi Geir Ottesen Indriði SigurðssonMiðvallarleikmenn: Rúrik Gíslason Aron Einar Gunnarsson Eggert Gunnþór Jónsson Jóhann Berg GuðmundssonSóknartengiliður: Gylfi Þór SigurðssonFramherji: Heiðar Helguson
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Sjá meira