Hálfsetinn Parken í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Kaupmannahöfn skrifar 7. september 2010 16:00 Parken. Mynd/AFP
Dönsku landsliðsmennirnir hafa áhyggjur af því að ekki skuli vera meiri áhugi á leik Danmerkur og ÍSlands eins og raun ber vitni. Ekki er búist við því að fleiri en 16-18 þúsund manns verði á leiknum í kvöld en Parken, þjóðarleikvangur Dana, tekur 38 þúsund manns í sæti. „Það eru vonbrigði hversu fáir miðar hafa selst á leikinn," sagði Daniel Agger við danska fjölmiðla. „Við vitum allir að það er einstök stemning á landsleikjum þegar Parken er fullur. Það hjálpar liðinu mikið. Ég vona bara að fleiri mæti í kvöld enda mikilvægur leikur í undankeppni EM þar sem þrjú stig eru í húfi." Simon Kjær, leikmaður Wolfsburg, segir að taka verði einnig tillit til andstæðingsins. „Þetta er svekkjandi en við vitum líka að þegar við erum ekki að spila við landslið í fremstu röð þá er Parken sjaldan fullur. Það eina sem við getum gert er að vera beinir í baki í kvöld og vinna Ísland. Þá koma vonandi fleiri næst," sagði hann. Morten Olsen, landsliðsþjálfari, hefur ekki miklar áhyggjur af þessu. „Við gerum allt sem við getum til að koma fram í fjölmiðlum og vekja athygli á liðinu. En það er góð stemning í hópnum og góð blanda af húmor og fagmennsku í honum." „En það er alltaf einhverjir sem segja að það leikmenn danska liðsins hafi slæmt viðhorf og leggi sig ekki fram. Við getum ekkert gert í því. Eitt óvinsælasta landslið undanfarinna ára var liðið sem spilaði saman vorið 1992. Nokkrum vikum síðar varð liðið Evrópumeistari."
Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Fleiri fréttir Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Sjá meira