Nýbökuð móðir með brjóstabarn á Þjóðfundi 3. nóvember 2010 15:37 Nýbökuð móðir hefur tilkynnt komu sína og fær ungbarnið til sín í hléum á fundinum til að gefa því að drekka. Mynd úr safni
Þjóðfundur um stjórnarskrá Íslands verður haldinn næstkomandi laugardag 6. nóvember í Laugardalshöll. Um 1000 þáttakendur eru skráðir á fundinn en þeir voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Hlutverk þeirra er að tjá hugmyndir sínar og skoðanir um stjórnskipan landsins og stjórnarskrá og endurskoðun á henni. Kynjaskipting þátttakenda er nánast jöfn og dreifingin þeirra er nokkuð í samræmi við aldurs og búsetudreifingu þjóðarinnar. Elsti þátttakandi á þjóðfundi er 89 ára, sá yngsti verður 18 ára nokkrum dögum fyrir kosningar til stjórnlagaþings, nokkur pör eða hjón voru boðuð, fyrir tilviljun, til fundarins og nýbökuð móðir hefur tilkynnt komu sína en fær ungbarnið til sín í hléum á fundinum til að gefa því að drekka. Undirbúningur fyrir fundinn er á lokastigi, en tæplega tvö hundruð manns koma að honum með einum eða öðrum hætti. Verið er að ljúka þjálfun 128 lóðsa eða borðstjóra en hlutverk þeirra er að leiða umræður á fundinum, tryggja að þátttakendur hafi jöfn tækifæri til að tjá sig og koma hugmyndum þeirra í réttan farveg. Lóðsar eru nú að hringja í þátttakendur til að lýsa tilhögun fundarins. Þátttakendur eru eftirvæntingarfullir og fjöldi þeirra hefur þegar lesið stjórnarskrána sem þeir fengu nýlega senda í pósti. Fyrstu fréttir af Þjóðfundi 2010 og viðfangsefni hans eru væntanlegar strax um hádegisbil á laugardeginum. Á laugardagskvöldið, eftir fundinn, verður unnið úr niðurstöðum hans með það í huga að geta kynnt fyrstu niðurstöður á sunnudag. Boðað er til blaðamannafundar sunnudaginn 7. nóvember kl. 16 á Grand hótel. Þar mun stjórnlaganefnd kynna frumniðurstöður Þjóðfundar 2010. Lögum samkvæmt mun stjórnlaganefnd síðan vinna áfram úr niðurstöðum fundarins og afhenda þær stjórnlagaþingi þegar það kemur saman í febrúar 2011.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira