Innlent

Eldfjallamálsverður vekur heimsathygli

Eldheit máltíð.
Eldheit máltíð. Mynd / GVA

Eldfjallakokkarnir frá Hótel Holti hafa vakið heimsathygli fyrir sérkennilegt eldhús sem þeir notuðust við á dögunum en þeir elduðu dýrindismáltíð fyrir par nálægt eldgosinu í Eyjafjallajökli.

Kokkarnir notuðu jarðhitann í hrauninu til þess að hita matinn og svo var boðið upp á ískalt kampavín í brunagaddinum en frostið fór niður í 20 gráður.

Hið sérkennilega borðhald rataði í fjölmiðla eins og New York Post. Þar má finna magnaða myndaröð af þessu sérkennilega borðhaldi en það var Kristján Logason sem tók myndirnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×