Innlent

Hryllileg kattardráp á Austurlandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það lítur allt út fyrir að kattarmorðingi gangi laus á Egilsstöðum. Mynd/ Vilhelm.
Það lítur allt út fyrir að kattarmorðingi gangi laus á Egilsstöðum. Mynd/ Vilhelm.
Tveir kettir í eigu Kristin Kristmundssonar verslunareiganda á Egilsstöðum hurfu fyrir 10 dögum. Um var að ræða læðu og lítinn kettling undan læðunni. Læðan fannst morgunin eftir á plani um 2 - 300 metrum frá verkstæði Kristins þar sem hann hafði kettina. Læðan var dauð og virðist hún hafa verið drepin á hryllilegan hátt. Kettlingurinn hefur hins vegar ekki fundist.

„Kisan var alblóðug og ég hélt að hún hefði verið skotin, hún var ekki orðin alveg köld og ég fór strax með hana til dýralæknis sem krufði hana," segir Kristinn í samtali við Austurgluggann. Kristinn segir að í ljós hafi komið að kisan hafi verið stungin með oddhvössu verkfæri. Útilokað sé að hún hafi verið skotin, eins og hann hafi haldið í fyrstu.

Tvisvar áður hafa kettir í eigu Kristins verið drepnir. Árið 2004 var köttur sem Kristinn átti skotinn og fór það mál fyrir dómstóla. Um það bil þremur árum síðar var svo eitrað fyrir ketti sem Kristinn átti og drapst hann einnig.

Kristinn segir við Austurgluggann að svo virðist vera sem einhver hafi lokkað kisuna sem var drepin um daginn til sín með því að freista hennar með brauði. Hann hefur kært málið til lögreglunnar að ráði dýralæknis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×