Fótbolti

Umfjöllun: Sárt tap gegn Noregi

Henry Birgir Gunnarsson á Laugardalsvelli skrifar
Heiðar fagnar marki sínu í kvöld.
Heiðar fagnar marki sínu í kvöld. Fréttablaðið/Anton

Noregur vann sigur á Íslandi, 1-2, er liðin mættust í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2012. Sigur Norðmanna var langt frá því að vera sanngjarn eða sannfærandi enda lék íslenska liðið vel og átti skilið að minnsta kosti stig úr leiknum. Það er þó aldrei spurt um sanngirni í íþróttum.

Íslenska liðið byrjaði leikinn með miklum látum og tók völdin nánast strax í upphafi. Aron Einar og Eggert Gunnþór tóku völdin á miðjunni og á vinstri vængnum voru þeir Gylfi Þór og Grétar Rafn sífellt hættulegir.

Ísland komst síðan yfir á 38. mínútu er Gylfi fíflaði John Arne Riise, gaf fyrir markið þar sem Heiðar Helguson skoraði með frábæru hælskoti.

1-0 fyrir Ísland sem var fyllilega verðskuldað.

Strákunum gekk ekki vel að halda á forystunni. Þeir gáfu eftir takið sem þeir höfðu á miðjunni og féllu allt of langt til baka í síðari hálfleik. Eftir aðeins 14 mínútur af síðari hálfleik var Noregur búinn að jafna. Risinn Brede Hangeland skallaði þá boltann í netið eftir hornspyrnu Riise.

Hann stökk manna hæst í teignum og hærra en Gunnleifur markvörður sem kom sér ekki í nógu góða stöðu og hefði mátt gera betur. Gunnleifur átti annars góðan leik og bjargaði nokkrum sinnum frábærlega úr dauðafærum.

Ísland skapaði ekki mikið í seinni hálfleik en Norðmenn refsuðu grimmilega korteri fyrir leikslok er Abdellaoue tók Sölva í bólinu, snéri hann af sér og lagði boltann smekklega í markið.

Strákarnir reyndu hvað þeir gátu að jafna en allt kom fyrir ekki. Afar svekkjandi 1-2 tap niðurstaðan sem er engin óskabyrjun í riðlakeppninni.

Margt jákvætt má þó taka úr þessum leik sem byggja má ofan á. Baráttuandinn er kominn aftur og því ber að fagna. Maður fékk loksins á tilfinninguna að leikmenn hefðu ánægju af því að spila fyrir Ísland og vildu virkilega leggja sig fram. Ástæðan fyrir því er klárlega sú uppstokkun sem hefur orðið í liðinu.

Nokkrir leikmenn með áskrift að sæti eru dottnir út og inn eru komnir hungraðir, ungir strákar sem hafa augljóslega mikinn áhuga á því að standa sig fyrir landsliðið. Þeir eru þess utan mun sprækari og hafa meiri áhuga á því að spila fótbolta en kýla stanslaust út í loftið. Það er vel.

Tapið er vissulega kjaftshögg en menn verða að byggja ofan á þennan leik því með þessu hugarfari og baráttu mun liðið bíta mun meira frá sér en í síðustu undankeppni.

Ísland-Noregur 1-2

1-0 Heiðar Helguson (38.)

1-1 Brede Hangeland (59.)

1-2 Mohammed Abdellaoue (75.)

Áhorfendur: 6.137

Dómari: Luca Banti 4.

Skot (á mark): 9-8 (4-5)

Varin skot: Gunnleifur 3 - Knudsen 3

Horn: 4-5

Aukaspyrnur fengnar: 12-12

Rangstöður: 3-1

Leikurinn var í beinni útsendingu á Boltavakt Vísis. Smelltu hér til að lesa lýsingu leiksins: Ísland - Noregur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×