Innlent

Ráðherrar setjast á skólabekk

Ráðherrar ríkistjórnarinnar eru á leið á skólabekk. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um að fela Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins að skipuleggja fræðslu fyrir ráðherra og aðstoðarmenn þeirra um stjórnsýslu- og upplýsingarétt ásamt fræðslu um jafnréttismál og siðareglur.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að jafnframt verði farið yfir lagareglur sem um ráðherrastarfið gilda og yfir starfshætti ríkisstjórnar í alþjóðlegum samanburði.

Þetta er annað verkefni Stjórnsýsluskólans sem nýlega var komið á fót en fyrsta verkefnið var fræðsla til starfsmanna Stjórnarráðsins en það sóttu um 50 starfsmenn úr 10 ráðuneytum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×