Gunnlaugur: Óska eftir vinnufriði fyrir liðið Elvar Geir Magnússon skrifar 31. ágúst 2010 07:00 „
Maður vissi ekki hvernig liðið myndi koma undan þessari orrahríð en maður vonaði að maður gæti notað þetta í að mótivera menn. Sú von varð að veruleika," sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Valsmanna, eftir sigur á Selfossi í gær. Mikið hefur gustað á Hlíðarenda að undanförnu og óvissa ríkt um framtíð Gunnlaugs. En er óvissutímanum lokið hjá Val? „Ég ætla rétt að vona það. Það er nóg komið af þessari umræðu og ég óska eftir vinnufriði fyrir liðið að klára þetta mót. Það eru fjórir leikir eftir og svo verður bara að koma í ljós hvað gerist," sagði Gunnlaugur. Eftir að fréttastofa Ríkissjónvarpsins greindi frá því að Gunnlaugur væri valtur í sessi og Valsmenn hefðu rætt við Guðjón Þórðarson um að taka að sér þjálfun liðsins urðu stjórnarskipti innan knattspyrnudeildar. Sagt var að Gunnlaugi hafi verið boðið að segja af sér fyrir stjórnarskiptin. Gunnlaugur vildi ekki tjá sig um hvort það væri rétt. „Nei, ég held að búið sé að segja nóg í því máli. Hvort það verði staður eða stund til að ræða það síðar á eftir að koma í ljós," sagði hann. Þeir fjórir menn sem létu af stjórnarstörfum sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þeir þökkuðu mörgum fyrir samstarfið. Það stakk í augun að öllu þjálfarateymi Vals var þakkað að undanskildum Gunnlaugi Jónssyni. „Ég vil ekkert tjá mig um það," sagði Gunnlaugur þegar hann var spurður hvort það hafi komið sér á óvart. Gunnlaugur var ánægður með hvernig liðið brást við umræðunni. „Við hleyptum þessu í óþarfa spennu í lokin en við sýndum góða spilamennsku, þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Mér fannst liðið frábært þá," sagði Gunnlaugur.„Við eigum í næstu leikjum lið sem eru í kringum okkur og við förum að sjálfsögðu í þá til að vinna. Við reynum að klifra eins hátt og við getum. Þetta er mjög jafnt mót."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Sjá meira