Innlent

Þriðjungur lækna í sérnámi segist ekki koma heim aftur

Meðal þess sem er gagnrýnt er að vaktakerfi unglækna hefur verið breytt umtalsvert. Læknarnir á myndinni tengjast efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
fréttablaðið/e.ól
Meðal þess sem er gagnrýnt er að vaktakerfi unglækna hefur verið breytt umtalsvert. Læknarnir á myndinni tengjast efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. fréttablaðið/e.ól
Einungis þriðjungur ungra lækna sem eru í sérnámi erlendis er ákveðinn í því að snúa aftur til Íslands að loknu námi. Þetta gengur þvert á reynslu innan íslensku læknastéttarinnar þar sem mikill meirihluti lækna hefur löngum verið staðráðinn í að snúa aftur heim að námi loknu. Nýleg könnun á vegum Læknafélags Íslands gefur vísbendingar um þessa þróun.

Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands (LÍ), tekur fram að niðurstöður könnunarinnar séu í sínum huga aðeins vísbending um þróun næstu ára. Svör þurfi frá fleiri læknum til að fá skýra mynd. „Hlutföllin í könnuninni eru engu síður mjög athyglisverð. Fyrir áratug eða tveim ætluðu allir íslenskir læknar í sérnámi heim. Níu af hverjum tíu stóðu við þau áform sín. Nú bregður hins vegar svo við að í þessari könnun skiptust menn í þrjá jafna hópa. Þeir sem ætla heim, þeir sem ætla ekki heim og svo þeir sem eru ekki búnir að taka ákvörðun.“ Um mitt ár í fyrra bjuggu 220 læknar undir fertugu utan landsteinana, við nám og störf.

Í ljósi þessara niðurstaðna og annarra rannsókna á vinnuafli íslenskra lækna hefur LÍ áhyggur af því að í sumum stéttum verði eingöngu eftir eldri læknar sem komast á eftirlaun innan tíu ára.

Valentínus Þór Valdimarsson, unglæknir og stjórnarmaður í Læknafélagi Íslands, vekur athygli á stöðu íslenskra unglækna í grein í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Hann segir að erfiðlega gangi að ráða í stöður lækna sem auglýstar eru hér á landi og bætir við: „Á síðum Læknablaðsins streyma inn auglýsingar um atvinnutilboð að utan og fréttir berast um æ fleiri lækna sem eru á leið til útlanda í vinnu. Vitsmunaflótti er því orðinn staðreynd á meðal stéttarinnar.“

Óþarft er að fjölyrða um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, hann er á allra vitorði. Hins vegar hafa forsvarsmenn heilbrigðisstofnana og fagfélaga heilbrigðisstarfsfólks lýst yfir áhyggjum sínum af flótta úr stéttum lækna og hjúkrunarfræðinga vegna niðurskurðar.

Valentínus segir í grein sinni að aðferðafræði stjórnvalda og stjórnenda stærstu heilbrigðisstofnana við niðurskurðinn muni að óbreyttu fæla fólk frá störfum hér á landi.

- shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×