John Hartson hefur áhuga á því að taka við velska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. september 2010 10:30 John Hartson í landsleik með Wales. Mynd/AFP
John Hartson, fyrrum framherji velska landsliðsins, hefur áhuga á því að taka við velska landsliðinu fari svo eins og allt stefnir í að John Toshack hætti með liðið. Enskir fjölmiðlar sögðu að Toshack væri á útleið eftir 1-0 tap á móti Svartfjallalandi í fyrsta leik undankeppninnar. John Hartson er 35 ára gamall og nýbúinn að sigrast á krabbameini en hann hefur enga reynslu af þjálfun. „Ég veit ekki hversu alvarlega sambandið mun skoða mig en ef ég fengi tilboð um að þjálfa liðið þá myndi ég hugsa mig vel um," sagði Hartson sem skoraði 14 mörk í 51 landsleik á árunum 1995 til 2005. John Toshack er búinn að stýra velska liðinu í sex ár eða síðan að hann tók við af Mark Hughes í nóvember 2004. Liðið er búið að vinna 21 af 53 leikjum og tapa 24 undir hans stjórn. Hartson lék á sínum tíma við góðan orðstýr hjá Celtic, West Ham og Arsenal. Hann bendir á aðkomu Mark Hughes að velska landsliðinu á sínum tíma sem dæmi um að maður án þjálfarareynslu geti alveg staðið sig í þessu starfi. Það eigi því ekki að útiloka hann þrátt fyrir reynsluleysi. Velska landsliðið er í riðli með Englandi, Sviss, Búlgaríu og Svartfjallalandi.
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Sjá meira