Gömul sannindi í nýrri rannsókn 14. maí 2010 06:00 Ný könnun rennir stoðum undir að hormónagetnaðarvarnir geti dregið úr kynhvöt kvenna. Nordicphotos/Getty images
Hormónagetnaðarvarnir virðast geta haft neikvæð áhrif á kynhvöt kvenna, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í byrjun mánaðarins í læknaritinu Journal of Sexual Medicine. Netúgáfa Time vitnar til rannsóknarinnar undir yfirskriftinni „Lítil kynhvöt, konur? Pillunni kann að vera um að kenna.“ Spurningalisti var lagður fyrir yfir þúsund kvenkyns læknanema í Þýskalandi. „Niðurstaðan var að konur sem notuðu hormónagetnaðarvarnir, aðallega pilluna, höfðu minni kynhvöt og fundu fyrir minni kynæsingi en konur sem notuðu aðrar eða engar getnaðarvarnir,“ er haft eftir Alfred Mueck, yfirmanni Miðstöðvar kvenheilsu við háskólasjúkrahúsið í Tübingen í Þýskalandi. Hann áréttar þó að rannsóknin sýni bara fylgni milli notkunar hormónagetnaðarvarna og kyndeyfðar, ekki orsakasamband. Ebba Margrét Magnúsdóttir, læknir hjá Landspítalanum og sérfræðingur í kvensjúkdómum, segir ný sannindi ekki að finna í þýsku rannsókninni, minni kynhvöt sé ein af þekktum aukaverkunum hormónagetnaðarvarna. „Konur koma oft og spyrja um þetta,“ segir hún, en áréttar um leið að fæstar konur finni fyrir slíkum aukaverkunum. „En þá notum við bara lykkjuna eða eitthvað annað,“ segir hún. - óká
Mest lesið Magnús Þór lést við strandveiðar Innlent Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Innlent Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Innlent Óvissa uppi um „stóra og fallega“ frumvarpið og Musk hótar hefndum Erlent Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Innlent „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Innlent Lágkúra og della að mati ráðherra Innlent Beðið eftir krufningarskýrslu Innlent Fleiri fréttir Samfélagið fari ekki á hliðina án tíufrétta Yfir helmingur drengja í sjötta bekk lent í slagsmálum Þjónusta sérgreinalækna við börn nú án endurgjalds Mesta fylgi síðan 2009 Börn í slagsmálum, arðbær bjórsala og dekurprinsessa Beðið eftir krufningsskýrslu Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Vill tryggja bráðaviðbragð í Öræfum allan ársins hring Lágkúra og della að mati ráðherra Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Bundið slitlag að fossinum Dynjanda í næsta mánuði Ragna yfirgefur Alþingi mánuði fyrr en áætlað var Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel Stjórnarformaðurinn segir stund sannleikans runna upp fyrir Eurovision Ræddu veiðigjaldið til hálf þrjú í nótt Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Sjá meira