Matur

Þrír framandi eftirréttir: Bollywood-döðlur, vitringahringur og palestínskar smákökur

"Þetta er arabískur réttur sem ég útfæri á minn hátt,“ segir Yesmine en nýlega gaf hún út mynddisk sem hefur að geyma fjölda uppskrifta.
"Þetta er arabískur réttur sem ég útfæri á minn hátt,“ segir Yesmine en nýlega gaf hún út mynddisk sem hefur að geyma fjölda uppskrifta.

Sérrífrómas með súkkulaði, möndlugrautur, heima­gerður ís og aðrir sígildir eftirréttir standa sannar­lega alltaf fyrir sínu um jólin.

Arabískt konfekt, palestínskar smákökur eða katalónskar kræsingar gefa þeim þó ekkert eftir og gæti verið tilvalið að prófa fyrir þá sem vilja breyta út af vananum. Frétta­blaðið sótti heim þrjá matgæðinga af erlendum uppruna sem hafa tekið ástfóstri við land og þjóð og fékk þá til að veita innsýn í eigin matarmenningu með uppskriftum að ljúffengum eftirréttum.

Indland

Yesmine Olsen gefur uppskrift að eftirrétt sem hún kallar Bollywood-döðlur og er að finna í nýrri bók hennar, Framandi og freistandi 3.

„Þetta eru í raun upphaflega arabískur dessert, döðlur sem möndlur eru settar í og dýft ofan í súkkualaði. Ég breytti þeim þó aðeins með því að bæta vanillu chai tei út í súkkulaðið. Svo er mikilvægt að skreyta almennilega í lokin."

Bollywood-döðlur með Masala Chai

20 ferskar döðlur, fjarlægið steinana (Färska dadlar frá Famouse)

20 möndlur, afhýddar

200 g suðusúkkulaði (70 prósent)

3 kardimommur

2 negulnaglar

hnífsoddur af kanil

½ vanillustöng eða hnífsoddur af vanillusykri

1 tsk. hrásykur



Má skreyta á ýmsan veg. Flott kökuskraut fæst í Tiger-búðunum, en eins má nota fínt skorin þurrkuð trönuber, þurrkaðar apríkósur eða pistasíuhnetur. Litir skipta hér öllu máli. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði. Takið steina úr döðlum og setjið möndlur í staðinn. Skerið vanillustöng eftir endilöngu og raspið að innan með hníf eða skeið. Setjið allt krydd og sykur í mortél og blandið vel.

Setjið hnífsodd af kryddblöndu út í súkkulaði og smakkið til. Bætið döðlum í og þekið með súkkulaði. Takið eina og eina döðlu upp úr súkkulaði með skeið og látið renna aðeins af þeim, leggið á bökunarpappír og skreytið.

Upplagt að bera fram með mangó sorbet eða ís.

Maite Bellés.

Katalónía

„Þessi kaka, svokallaður tortell de reis eða vitringa­hringur, er borðuð í Katalóníu hinn 6. janúar til að halda upp á heimsókn vitringanna frá Austurlöndum til Jesú­barnsins í Betlehem.

Með stjörnuna að leiðarljósi vottuðu þeir Jesúbarninu virðingu sína og færðu því gull, reykelsi og myrru. Þess vegna er venjan innan kaþólsku kirkjunnar að gefa börnunum jólagjafirnar á þessum degi," segir Maite Bellés frá Katalóníu.

Vitringahringur

Deig 1

100 g hveiti

1 dl volg mjólk

45 g pressuger



Deig 2

180 g sykur

rifinn börkur af 1 sítrónu

1 dl mjólk

80 g smjör (við stofuhita)

3 lítil egg

600 g hveiti

6 g salt



Fylling

Rjómi eða krem

Skreytingar

50 g ristaðar furuhnetur

100 g þurrkuð ávaxtablanda

12 blönduð kokkteilber

1 egg eða eggjahvíta til að pensla



Hrærið saman hveiti, mjólk og pressuger (deig 1) í skál, hyljið með eldhúsþurrku og látið standa í hálftíma. Setjið sykur, sítrónubörk, mjólk, smjör, egg og þriðja partinn af hveiti (deig 2) í aðra skál; hrærið vel í hrærivél og bætið síðan við deigi 1 og afgangi af hveiti og hrærið áfram í 10 mín. Hyljið skál með eldhúsþurrku og látið standa í 2 klst. við 35°C.

Fóðrið 26 cm kringlótt form með smjör­pappír. Til að ná réttu kórónuformi setjið hringlaga form í miðju, með smjörpappír. Setjið hveiti á borð og hnoðið deig í 1 mín. Dreifið úr hluta af deigi í 26 cm form, penslið með eggi og látið standa í 2 klst. við 35°C.

Eftir það hefur deig tvöfaldast og er þá tekið úr ofni (en afgangur af deigi dugar í 20 cm hring). Aukið nú hita í 180°C. Penslið aftur með eggi og skreytið. Setjið aftur í ofn í 25 mín. Takið þá út og látið kólna. Skerið í sundur og komið fyllingu fyrir. Stærri hring má fylla með kremi og þann minni með rjóma.

Faraj Shwaiki Al Amir.

Palestína

Faraj Shwaiki Al Amir hefur verið búsettur á Íslandi um margra ára skeið en er fæddur og uppalinn í Palestínu. Hann segir kristna þar í landi fagna jólunum með svipuðu móti og hérlendis þótt minna sé um gjafastand og skraut.

„Þegar ég fluttist til landsins árið 1989 kom allt jólaskrautið mér svolítið á óvart en mér þótti það samstundis mjög glaðlegt og skemmtilegt."

Palestínskar smákökur (Mutabak)

Deig

1 kg hveiti

3 bollar volgt vatn

¼ tsk. salt

2 bollar smjör eða ólífuolía

1 bolli matarolía



Fylling

2 bollar saxaðar pekanhnetur

1 tsk. kanill

½ bolli sykur



Sykurvatn

2 bollar sykur

1 bolli vatn

½ tsk. sítrónudropar



Látið sjóða í 5 mínútur og bætið sítrónudropum við og látið sjóða í 10 mínútur.

Setjið hveiti, vatn, matarolíu og salt í skál og hrærið. Látið deig lyftast í nokkra tíma. Gerið kúlur, u.þ.b. 200 g hver, og dýfið ofan í smjör í smá stund. Notið smjör í að fletja deig mjög þunnt út.

Setjið fyllingu í endann og rúllið deigi upp og penslið alltaf á milli með smjöri. Rúllið lengju í snúð. Bakið í 10-15 mín. við 200°C. Hellið sykurvatni yfir kökur þegar þær koma úr ofni.

Uppskrift miðast við að deig sé keypt tilbúið til að spara tíma. Það kallast Filodegsplatter og fæst til dæmis í Fjarðarkaupum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×