Innlent

Íslendingur í Santiago: Fólk enn í miklu áfalli

Íslendingur sem staddur var á sjöundu hæð í íbúðarhúsi í höfuðborg Chile ásamt fjölskyldu sinni þegar skjálftinn reið yfir segir fólk þar enn í miklu áfalli. Óvissa ríkir enn um afdrif sjö Íslendinga í Chile.

Talið er að um hálf milljón bygginga hafi hrunið í jarðskjálftanum. Byggingar í Santiago eru aðallega skemmdar en standa þó flestar. Smáþorpin eru illa farin og eyðileggingin mikil. Rúmlega þrjú hundruð hafa látist og búist er við að tala látinna hækki. Fjölmargar er enn leitað. Fólk þarf að hafast við úti þar sem hýbýli þeirra eru hrunin og eftirskjálftar ríða reglulega yfir

Ástandið í borginni Concepcion er ekki gott, byggingar í miðborginni eru hrundar og þar er rafmagns- og vatnslaust og símasambandið lítið sem ekkert.

Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná í fjölda Íslendinga í Chile í dag en án árangurs. Við fengum hins vegar sendar lýsingar á aðstæðum í tölvupósti frá Bjarna Richter starfsmanni ISOR sem staddur var á sjöundu hæð í íbúðarhúsi ásamt fjölskyldu sinni í Santiago þega skjálftinn reið yfir. Hann segist hafa vaknað við brak og bresti í húsinu og lýsir skjálftanum svona.

„Skápar féllu fram og það hreinsaðist af öllum borðum. Ekkert heyrðist í drengjunum í næsta herbergi þannig að maður reyndi að hlaupa inn til þeirra til að kanna hvort þeir hefðu komið sér í skjól við hliðina á rúminu. Láum síðan næstu hálfu mínútuna eða svo og fylgdumst með loftinu, sannfærð um að það myndi detta hvað úr hverju."

Bjarni og hans fjölskylda sluppu ómeidd úr skjálftanum. „Útidyrahurðin hafði skekkst þannig að við komumst ekki út. Húsverðirnir aðstoðuðu okkur við að rífa hurðina af hjörunum."

Hann segir andrúmsloftið einkennilegt í borginni. „Fólkið hér í Santiago er í sjokki. Það var skrítin tilfinning á götunum. Allt hér í lausagangi og fólk gangandi um að skoða skemmdir."






Tengdar fréttir

Íslendingar í Chile

Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um fjóra Íslendinga í Chile þar á meðal á vegum Landhelgisgæslunnar. Öflugur jarðskjálfti upp á 8,8 á Richter skók landið í morgun. Ekki er vitað hvort Íslendingarnir hafi verið á skjálftasvæðinu.

Íslendingur á Hawaii: Búist við flóðbylgju í kvöld

„Ég vaknaði við sírenur um klukkan sex í morgun og ég vissi strax að þetta var ekki æfing því þær eru alltaf fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði,“ segir Ásdís Benediktsdóttir sem býr á Hawaii. Búist er við að fimm metra há fljóðbylgja skelli á eyjarnar milli klukkan níu og tíu í kvöld að íslenskum tíma.

Varðskipið ólaskað eftir jarðskjálftann

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að svo virðist við fyrstu sýn að varðskipið Þór sem nú er í smíðum í borginni Concepsion fyrir Gæsluna hafi sloppið við skemmdir í jarðskjálftanum sem reið yfir Chile í gærmorgun. Skipasmíðastöðin hafi hins vegar verið rústir einar eftir skjálftann.

Íslendingar í Chile hafa ekki látið vita af sér

Utanríkisráðuneytinu er um kunnugt um allt að 35 Íslendinga í Chile en geysiöflugur jarðskjálfti reið yfir landið í morgun. Níu þeirra hafa náð að láta vita af sér gegnum internetið, að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins. Talið er að sex Íslendingar hafi verið í borginni Consepcion en upptök skjálftans voru um 90 kílómetra norðaustur af henni.

Danirnir afla upplýsinga um starfsmenn Gæslunnar

Á vegum Landhelgisgæslunnar eru tveir Íslendingar og fjórir Danir í borginni Concepcion í Chile við eftirlit með lokafrágangi á nýju varðskipi sem er verið að byggja fyrir Íslendinga. Fyrir skömmu náði Landhelgisgæslan tali af Dönunum og eru þeir heilir á húfi en ekkert hefur heyrst frá ÍSlendingunum.

Enn hefur ekki heyrst í 15 Íslendingum

Yfir 150 eru látnir eftir jarðskjálftann sem skók Chile í morgun og búist er við að tala látinna fari hækkandi. Utanríkisráðuneytið hefur nöfn 38 Íslendinga sem staddir eru í Chile og eru 23 þeirra heilir á húfi. Enn hefur ekki heyrst í 15 Íslendingum

Ekki vitað um átta Íslendinga í Chile

Af 40 Íslendingum sem taldir eru hafa verið í Chile í gær þegar jarðskjálfi skók landið í gærmorgun hafa 32 látið vita af sér en utanríkisráðuneytið hefur ekki heyrt frá átta Íslendingum sem taldir eru vera í Chile.

Allt að 25 Íslendingar í Chile

Ábendingar hafa borist til utanríkisráðuneytisins um allt að 25 Íslendinga í Chile en geysiöflugur jarðskjálfti reið yfir landið í morgun. Sjö Íslendinganna hafa náð að láta vita af sér en engar fregnir hafa borist af hinum 18, að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingarfulltrúa ráðuneytisins.

Tala látinna fer hækkandi í Chile

Tala látinna eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir Chile í morgun fer hækkandi og segja nýjustu tölur að rúmlega sextíu hafi farist. Skjálftinn var átta komma átta á Richter. Utanríkisráðuneytið hefur upplýsingar um að minnsta kosti fjóra Íslendinga í landinu. Engar fréttir hafa borist af þeim í morgun.

Ekkert heyrst frá 13 Íslendingum

Að minnsta kosti 300 manns hafa látist vegna jarðskjálftans sem skók Chile í gær. Forseti landsins, Michelle Bachelet, sagði í ávarpi í gær að talið væri að skjálftinn hafi haft áhrif á heimili og líf tveggja milljóna Chile búa. Rafmagn, símalínur og vatnsveitur liggja enn niðri á stórum skjálftasvæðum og eyðileggingin er mikil.

Öflugur jarðskjálfti í Chile

Talið er að minnsta kost sex hafi látist og fleiri slasast í öflugum jarðskjálfta upp á 8,8 á Richter sem skók Chile í Suður Ameríku í morgun. Þetta er stærsti jarðskjálftinn sem hefur riðið yfir landið í 25 ár. Óttast er að fleiri hafi látist og slasast en tölur um það eru á reiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×