Umfjöllun: Fylkir fékk flugstart á móti Val Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. maí 2009 18:15 Úr leik Fylkis og Vals á síðustu leiktíð. Mynd/Valli
Ungt lið Fylkis gerði sér lítið fyrir í kvöld og skellti Val, 1-0. Frekar óvænt úrslit enda er Valsmönnum spáð toppbaráttu í sumar og hefur yfir talsvert sterkari hóp að ráða en Fylkismenn. Það telur aftur á móti ekkert þegar út í leikinn er komið og það sönnuðu Fylkisguttarnir í kvöld. Þeir voru gríðarlega baráttuglaðir, sýndu Valsmönnum enga virðingu og höfðu betur í baráttunni. Valsmenn voru þokkalegir framan af en leikur þeirra gjörsamlega hrundi eftir mark Kjartans Breiðdal á 22. mínútu. Þeir voru linari í návigjum, ómarkvissir í sóknarleiknum og varnarleikurinn ekki nógu sannfærandi. Ofan á það kom skelfilegur leikur Kjartans Sturlusonar í markinu en hann var arfaslakur svo ekki sé meira sagt. Miðjumenn Vals - Baldur Bett og Ian Jeffs - afar slappir en Guðmundur Mete skástur þeirra í hlutverki varnarsinnaðs miðjumanns. Á vængjunum voru Baldur Aðalsteinsson og Ólafur Páll Snorrason bitlausir með öllu og létu rúlla sér upp. Varnarlína Fylkis sterk, bakverðirnir grimmir og miðjan öflug þar sem Valur Fannar stýrði sínum strákum. Framherjarnir síðan afar vinnusamir og sköpuðu á stundum usla með dugnaði sínum. Valsmenn voru í raun meðvitundarlausir eftir markið allt þar til Helgi Sigurðsson og Marel Baldvinsson komu af bekknum er hálftími lifði leiks. Þá kom smá neisti í Valsliðið en sá neisti varð aldrei að neinu báli. Þeir sköpuðu þó eitt virkilega gott færi sem þeir voru klaufar að nýta ekki. Fylkismenn unnu því að lokum verðskuldaðan sigur. Þeir voru beittari, grimmari, duglegri og spiluðu mun betur saman sem lið. Það verður spennandi að fylgjast með þessu fríska liði í sumar. Á Hlíðarenda er aftur á móti verk að vinna og Willum þarf að vinna hratt áður en pressan verður of mikil. Fylkir-Valur 1-0 1-0 Kjartan Ágúst Breiðdal (22.) Fylkisvöllur. Áhorfendur: 1.029 Dómari: Eyjólfur Magnús Kristinsson (6) Skot (á mark): 8-10 (3-1) Varin skot: Fjalar 1 - Kjartan 2. Horn: 5-4 Aukaspyrnur fengnar: 14-17 Rangstöður: 4-1 Fylkir (4-4-2):Fjalar Þorgeirsson 6 Andrés Már Jóhannesson 6 Einar Pétursson 6 (87., Davíð Ásbjörnsson -) Kristján Valdimarsson 6Tómas Þorsteinsson 7 - Maður leiksins.Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6 Valur Fannar Gíslason 7 Halldór Hilmisson 3 (82., Felix Hjálmarsson -) Kjartan Ágúst Breiðdal 7 Pape Mamadou Faye 5 (73., Kjartan Baldvinsson -) Ingimundur Níels Óskarsson 6 Valur (4-3-3): Kjartan Sturluson 2 Steinþór Gíslason 5 Reynir Leósson 6 Atli Sveinn Þórarinsson 6 Bjarni Ólafur Eiríksson 6 Guðmundur Viðar Mete 6 (73., Pétur Georg Markan -) Baldur Bett 3 (59., Helgi Sigurðsson 6) Ian Jeffs 3 Baldur Ingimar Aðalsteinsson 2 Viktor Unnar Illugason 5 (69., Marel Baldvinsson 4)
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Tómas: Þessir leikmenn eru ekki að elta peninga Hinn tvítugi Tómas Þorsteinsson, Fylkismaður og sonur sjónvarpsmannsins Þorsteins Joð Vilhjálmssonar, lék sinn fyrsta leik í efstu deild í kvöld. Hann átti virkilega flottan leik og gjörsamlega „snýtti" reynsluboltanum Ólafi Páli Snorrasyni. 10. maí 2009 21:54 Reynir: Áfall að fá á sig mark „Þetta var baráttuleikur og hvorugt liðið var kannski ekki beint ofan á í þeirra baráttu. Fylkir gaf ekki mörg færi á sér og þeir fá svo ódýrt mark. Það er oft svolítið áfall að fá á sig mark. Það tók okkur tíma að ná okkur eftir það," sagði Reynir Leósson, leikmaður Vals, eftir tapið gegn Fylki í Árbænum. 10. maí 2009 21:42 Mest lesið Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Íslenski boltinn Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Fótbolti Sló met Eiðs Smára Íslenski boltinn Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Íslenski boltinn Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk Íslenski boltinn Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM Fótbolti Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn „Fólk má hafa sínar skoðanir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Sjá meira
Tómas: Þessir leikmenn eru ekki að elta peninga Hinn tvítugi Tómas Þorsteinsson, Fylkismaður og sonur sjónvarpsmannsins Þorsteins Joð Vilhjálmssonar, lék sinn fyrsta leik í efstu deild í kvöld. Hann átti virkilega flottan leik og gjörsamlega „snýtti" reynsluboltanum Ólafi Páli Snorrasyni. 10. maí 2009 21:54
Reynir: Áfall að fá á sig mark „Þetta var baráttuleikur og hvorugt liðið var kannski ekki beint ofan á í þeirra baráttu. Fylkir gaf ekki mörg færi á sér og þeir fá svo ódýrt mark. Það er oft svolítið áfall að fá á sig mark. Það tók okkur tíma að ná okkur eftir það," sagði Reynir Leósson, leikmaður Vals, eftir tapið gegn Fylki í Árbænum. 10. maí 2009 21:42
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn