Gengið yfir hálendið á þrjátíu dögum 30. júlí 2009 03:30 Sjö ferðalangar gengu alla þrjátíu dagana ásamt Róberti, en einnig var boðið upp á að ganga með hluta leiðarinnar. Hér sést hópurinn vaða yfir ána Sveðju, skammt frá Köldukvíslarjökli. Mynd/Dagný Indriðadóttir „
Svona ferðalag tekur gríðarlega mikið á og ég er ekki frá því að ég hafi lést um fimm eða sex kíló á þessum þrjátíu dögum. En það er algjörlega þess virði. Reynslan er ótrúleg og það eru forréttindi að fá borgað fyrir að starfa við þetta," segir Róbert Þór Haraldsson hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Róbert kom til byggða á mánudag ásamt sjö erlendum ferðamönnum eftir þrjátíu daga langt ferðalag um hálendi Íslands. Hópurinn lagði af stað frá Ásbyrgi í Öxarfirði hinn 29. júní síðastliðinn. Er hér um að ræða lengstu skipulögðu gönguna sem boðið er upp á hér á landi í sumar. Leið hópsins lá meðal annars upp í gegnum Jökulsárgljúfur, að Dettifossi, yfir að Kröflu, niður í Mývatnssveit, yfir Gæsavatnaleið, niður Vonarskarð og endaði í Vík eftir ferð yfir Mýrdalsjökul. Var gengið að meðaltali sjö til tíu klukkustundir á dag. Á leiðinni hvíldi hópurinn sig í fjóra daga. „Þetta er alls ekki stysta leiðin en alveg örugglega sú athyglisverðasta, enda ótal margt að sjá," segir Róbert. Ferðamennirnir í hópnum eru frá Kanada, Bandaríkjunum, Noregi, Danmörku, Noregi, Belgíu og Frakklandi. „Á svona göngu er ekki um neitt annað að ræða en að spjalla saman og því myndast sterk vináttubönd. Það er alltaf happa og glappa hvernig svona hópar ná saman en í þetta sinn tókst það hreint ótrúlega vel. Hvort sem menn eru reyndir göngugarpar eða ekki, þá vaxa þeir á leiðinni og verða sterkari á eftir." Róbert segir þó afskaplega gott að koma heim eftir slíka ferð. „Skiljanlega er fólkið þreytt. Á einum tímapunkti var búið að plástra sjö af tíu tám á konu sem gekk með okkur, en hún kvartaði aldrei og hélt ótrauð áfram," segir Róbert Þór Haraldsson.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Sjá meira