Innlent

Fjandsamleg yfirtaka í Framsóknarflokknum

Sæunn Stefánsdóttir er ein þeirra sem segir að framsóknarfélagið hafi verið yfirtekið með fjandsamlegum hætti.
Sæunn Stefánsdóttir er ein þeirra sem segir að framsóknarfélagið hafi verið yfirtekið með fjandsamlegum hætti.

Hópur framsóknarmanna sem sótti fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi segist hafa orðið vitni að fjandsamlegri yfirtöku á félaginu. Efni fundarins var val á fulltrúum þess á flokksþing Framsóknarflokksins síðar í mánuðinum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá hópnum en á meðal þeirra sem skrifa undir hana er Sæunn Stefánsdóttir, núverandi ritari Framsóknarflokksins.

 

„Á fundinum urðum við vitni að fjandsamlegri yfirtöku á félaginu. Hún var gerð með skráningu um 70 nýrra félaga undir lok dags og mættu hinir nýju félagar á fundinn. Með þeim hætti var félagið tekið yfir og tillaga borin fram um nýjan fulltrúalista á flokksþing í stað þess sem stjórn hafði lagt fram. Sá listi var tilraun til að hleypa að öllum sjónarmiðum og því að okkar mati lýðræðislega unnin. Jafnframt var gerð tilraun til að setja fundarstjóra af til að ná tökum á fundinum. Ekki kom fram að yfirtakan byggði á nokkrum málefnalegim grundvelli heldur var tilgangurinn greinilega sá að fá nýjan hóp framsóknarmanna með atkvæðisrétt á flokksþingið sem framundan er," segir í yfirlýsingunni.

 

Hópurinn segist fordæma þau vinnubrögð sem þarna voru viðhöfð og að hann telji þau í algerri andstöðu við vilja fólks um ný vinnubrögð í stjórnmálum. Framsóknarflokkurinn nái ekki trausti kjósenda með þessum hætti og fjandsamleg yfirtaka líkt og sú sem hafi átt sér stað í gærkvöldi lýsi andlýðræðislegum vinnubrögðum.








Tengdar fréttir

Sigmundur smalaði ekki á átakafund

,,Það var búið að vara mig við því að það væri von á átökum á þessum Reykjavíkurfundi en ég átti ekki von á því að þetta gengi svona fyrir sig. Ég hefði haldið að í hátt í 100 ára gömlum flokki væri ekki svona mikil óvissa um hvernig hlutirnir færu fram," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formannsframbjóðandi í Framsóknarflokknum, um mikinn hitafund Framsóknarfélagsins í Reykjavík í gærkvöldi. Hann segist ekki hafa staðið á bak við eða tengjast smölun á fundinn.

Harkaleg átök í Framsóknarflokknum

,,Það er ekkert óeðlilegt við það að nýir menn gangi í flokkinn eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðmundur Steingrímsson og sjálfsagt að þeim fylgi eitthvað fólk. Ég geri til að mynda fastlega ráð fyrir að fjölskylda og vinir fylgi Sigmundi en þetta var auðvitað öðruvísi gjörningur," segir Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×