Fótbolti

Real neitaði Ronaldo um að fara til Portúgal

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo bað Real Madrid um leyfi til þess að fara með portúgalska landsliðinu til Portúgal þar sem það mætir Möltu í lokaleik sínum í undankeppni HM.

Þeirri ósk leikmannsins var hafnað af félaginu enda meiddist Ronaldo í landsleiknum um helgina og félagið vill ekki að hann missi af einum degi í endurhæfingunni sem bíður enda horfir félagið á að vera án hans í heilan mánuð.

Félagið stefnir á að gera hann kláran í slaginn á þrem vikum.

Nokkur togstreita er á milli Real og portúgalska knattspyrnusambandsins í kjölfar þess að landsliðsþjálfari Portúgal hafði sagt að Ronaldo væri nógu heill til þess að spila en því var Real sammála.

Í ljós kom síðan í leiknum að hann var alls ekki nógu góður til heilsunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×