Enski boltinn

Sven-Goran Eriksson vill komast aftur til Englands

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sven-Göran Eriksson var rekinn eftir að tíu mánuði sem þjálfari Mexíkó.
Sven-Göran Eriksson var rekinn eftir að tíu mánuði sem þjálfari Mexíkó. Mynd/GettyImages

Sven-Göran Eriksson var rekinn sem þjálfari landsliðs Mexíkó í gær en umboðsmaðurinn hans segir að hann vonist eftir því að fá næsta starf í Englandi.

Eriksson hefur góða reynslu af enska boltanum, þjálfaði enska landsliðið frá 2001 til 2006 og náði 9. sætinu með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

„Ég vildi aldrei að hann tæki við þessu starfi í Mexíkó því þetta er eins og fara inn í pólískri púðurtunnu," sagði Athole Still umboðsmaður Svens-Görans en Svíinn entist aðeins í 10 mánuði í Mið-Ameríku ríkinu.

„Það verður örugglega nóg af tilboðum fyrir hann og ég veit að hann myndi elska það að fá að starfa í Englandi á ný. Hann fyrsti kostur væri að fá að stýra góðu ensku úrvalsdeildarliði," sagði Still.

Sven-Göran hefur stjórnað átta félögum á sínum ferli þar á meðan IFK Gautaborg, Lazio, Roma, Sampdoria og Benfica.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×