Heimir Guðjónsson: Sterkur sigur Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 14. maí 2009 22:12 Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. Mynd/Vilhelm „
Þetta var sterkur sigur. Við spiluðum ekki vel í fyrri hálfeik og vorum of langt frá mönnunum okkar varnarlega og mikið um sendingafeila. Þrátt fyrir það sköpuðum við okkur tvö dauðafæri og brenndum af vítaspyrnu," sagði Heimir. „Í seinni hálfleik fannst mér liðið stíga upp og spila mjög vel og vinna sanngjarnan sigur að mínu mati gegn mjög sterku og vel skipulögðu Framliðið sem er mjög erfitt að brjóta niður. Þess vegna er ég sáttur við karakterinn sem liðið sýndi." „Þetta var ekkert ósvipað og þegar við spiluðum við þá hér í fyrra. Þá vorum við slakir í fyrri hálfleik en komum sterkir upp í síðari hálfleik. Það þarf ákveðna þolinmæðisvinnu til að brjóta þess vörn Fram á bak aftur en okkur tókst það í dag." Litlu munaði að Fram jafnaði metin á lokamínútunum þegar Alexander Veigar Þórarinsson skaut í stöng úr fínu færi. „Maður hugsaði með sér þegar hann skaut í stöngina að nú væri smá heppni að falla með okkur," sagði Heimir. Skömmu áður skipti Heimir Tommy Nielsen inn í vörnina en hann var ekkert hræddur við að riðla varnarleiknum í lokin með skiptingunni. „Tommy Nielsen er okkar reyndasti maður og hefur staðið sig frábærlega með FH. Ég vildi setja hann inn síðustu 10 mínúturnar til að kom skikk á vörnina og tala við mennina í kringum sig. Hann er frábær leiðtogi og gerði þetta mjög vel. Hann var að hreinsa upp á síðustu mínútunum mjög vel," sagði þjálfari Íslandsmeistaranna.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Íslenski boltinn Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ Sjá meira