Innlent

Ljósastaurar skreyttir hvítum borðum

Menn hafa í kvöld farið um götur miðborgarinnar og bundið hvíta borða á ljósastaura. Um nokkurskonar gjörning virðist vera um að ræða sem gengur út á að vekja athygli á heimasíðunni nyttlydveldi.is, en þar setur rithöfundurinn Njörður P. Njarðvík ásamt fleirum fram hugmyndir um breytta stjórnarhætti hér á landi.

Ætlun þeirra sem standa að gjörningnum er sú að í fyrramálið verði allir ljósastaurar miðborgarinnar skreyttir hvítum borðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×