Enski boltinn

Vandræði hjá Southampton

Nordic Photos/Getty Images

Viðskiptum með hlutabréf í félaginu Southampton Leisure Holding var hætt í dag eftir að félagið var sett í greiðslustöðvun. Um er að ræða hlutafélagið á bak við knattspyrnufélagið Southampton í ensku B-deildinni.

Forráðamenn Southampton eru bjartsýnir á að nýr kaupandi finnist, en skuldir félagsins nema um 30 milljónum punda.

Southampton er sem stendur í næstneðsta sæti deildarinnar, en sleppur við að tíu stig verði dregin af liðinu þar sem félagið sjálft er ekki í greiðslustöðvun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×