Gabriel Agbonlahor fær stuðning frá Luke Young Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2009 10:15 Gabriel Agbonlahor og Luke Young fagna marki saman. Mynd/GettyImages
Markaleysi Gabriel Agbonlahor, framherja Aston Villa, hefur verið í umræðunni að undanförnu enda hefur Agbonlahor aðeins skorað eitt mark í síðustu sextán leikjum með Villa. Á dögunum var púað á strákinn þegar honum var skipt útaf í leik á móti Tottenham en stjórinn Martin O'Neill var reyndar fljótur að gagnrýna það háttalag stuðningsmanna félagsins. Nú hefur landsliðsmaðurinn Luke Young einnig komið fram og stutt við bakið á Agbonlahor. „Í byrjun tímabilsins þá fór allt inn sem Gabby (Agbonlahor) snerti fyrir framan markið. En það koma líka kaflar þar sem ekkert gengur upp. Þá skiptir oft ekki máli hversu mikið þú leggur á þig því hlutirnir detta ekki fyrir þig," segir Young. „Ég er viss um að þetta fari að breytast hjá Gabby. Hann verður bara að halda áfram að koma sér á réttu staðina og þá hljóta mörkin að fara að detta inn að nýju," sagði Young. „Hann er frábær framherji sem var kominn inn í enska landsliðið á þessu tímabili," sagði Young sem segir að Aston Villa liðið þurfti að berja sig saman eftir nokkur döpur úrslit í síðustu leikjum. „Við erum ekki að spila eins vel og við höfum verið að gera. Úrslit leikjanna sýna það," segir Young sem segir liðið ætli sér að ná markmiðum tímabilsins sem er að komast í hóp þeirra bestu í deildinni. „Það eru átta leikir eftir og ég er viss um að stjórinn okkar er að skoða það núna hvað það er sem við þurfum að gera betur á lokasprettinum," sagði Young en Aston Villa er í harðri baráttu við Arsenal um fjórða sætið sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni á næsta ári.
Mest lesið Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Handbolti Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Enski boltinn Undrandi á skrýtinni stöðu: „Þetta er bara ekki að virka“ Handbolti Króatar Dags lentu í kröppum dansi í fyrsta leik á EM Handbolti Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Handbolti Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Körfubolti Norðmenn áfram í milliriðla Handbolti Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Fótbolti Átta íslensk mörk í svekkjandi tapi Handbolti Einar enn í einangrun en aðrir ferskir Handbolti Fleiri fréttir Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Sjá meira