Enski boltinn

Milner: Við eigum ekki að tapa svona stórt

Milner og félagar voru teknir í bakaríið á Anfield
Milner og félagar voru teknir í bakaríið á Anfield Nordic Photos/Getty Images

Miðjumaðurinn James Milner hjá Aston Villa bað stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir að það var kjöldregið 5-0 af Liverpool á Anfield. Villa hefur gengið afleitlega undanfarið og er liðið að missa af lestinni í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni.

"Brugðumst við félaginu og sjálfum okkur? Að sjálfssögðu. Það eru alltaf vonbrigði að tapa. Að tapa 5-0 er ekki nógu gott, sérstaklega fyrir lið eins og Villa og í ljósi þess hve vel okkur hefur gengið á leiktíðinni. Maður á ekki að tapa svona stórt," sagði Milner í samtali við breska fjölmiðla.

Hann segir að landsleikjahléð um helgina komi á versta mögulega tíma fyrir Aston Villa sem hefur ekki unnið deildarleik í mars. "Það þýðir að við getum ekki gleymt þessu tapi nærri strax," sagði Milner.

Aston Villa vann síðast leik í deildinni þann 7. febrúar þegar liðið lagði Blackburn 2-0 á útivelli.

Síðan hefur liðið tapað fyrir Chelsea, Liverpool, Tottenham og Manchester City og gert jafntefli við Stoke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×