KSÍ: Mikil vonbrigði að missa samninginn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. febrúar 2009 12:43 Þórir Hákonarson, Geir Þorsteinsson formaður KSÍ og Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/E. Stefán
Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, segir að það séu mikil vonbrigði að Landsbankinn hafi hætt stuðningi sínum við efstu deild karla og kvenna í knattspyrnu. Forráðamenn KSÍ hafa verið inntir eftir því reglulega eftir bankahrunið í haust hvort þeir teldu að nýir eigendur Landsbankans myndu halda áfram samstarfi sínu við KSÍ en samningurinn gilti til loka næsta tímabils. Þeir sögðust ávallt vera vongóðir um það. „Já, þetta kom á óvart. Auðvitað vonuðumst við til þess að þetta samstarf myndi halda áfram út samningstímann. Allir vita að bankarnir eru komnir í hendur nýrra eigenda en við vorum engu að síður vongóðir," sagði Þórir í samtali við fréttastofu. „Ég myndi ekki segja að þetta væri fjárhagslegt áfall fyrir KSÍ en það á þó eftir að koma betur í ljós. Við vonum ekki og ætlum nú að reyna að finna annan stuðningsaðila. En þetta er vissulega áfall, því er ekki að neita." Aðspurður segir Þórir að sambandið hafi ekki unnið í því að reyna að finna aðra stuðningsaðila að deildunum eftir fall bankanna í haust. Hann segir þó ekki að hann telji að Landsbankinn hafi verið að draga KSÍ á asnaeyrunum. „Ég myndi ekki segja það. Starfsmenn leyfðu okkur að fylgjast með hvað væri að gerast í þessum málum. Sjálfir voru þeir vongóðir um að það myndi halda áfram en það var auðvitað ekki þeirra ákvörðun. Ég held að þeir hafi orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum og við með þessa niðurstöðu." „En tímasetningin er vissulega mjög slæm. Það er stutt í mót og aldrei að vita hvað gerist í þessum efnum. Við viljum að deildin skipi áfram sama sess og verið hefur. Við munum halda merki deildarinnar áfram á lofti. Hann harmar mjög ákvörðun Landsbankans. „Ég held að þetta hafi verið eitt besta verkefnið sem bankinn hefur farið í og þar af leiðandi var ég vongóður um að það myndi halda áfram. Þetta eru mikil vonbrigði, fyrst og fremst."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sjá meira