Innlent

Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut, skammt frá álverinu við Straumsvík, þegar bifreið hafnaði utanvegar rétt eftir klukkan sex í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliði voru þrír fluttir á slysadeild en ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um líðan þeirra. Beita þurfti klippum til að ná fólkinu út og tók það tæpan hálftíma.

Vísir hefur ekki fengið upplýsingar um tildrög slyssins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×