Grunur um að úrslitum 200 leikja í Evrópu hafi verið hagrætt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2009 15:56 Peter Limacher ræðir við fréttamenn í dag. Nordic Photos / AFP
Þýsk yfirvöld hafa nú handtekið sautján manns í tengslum við risavaxna rannsókn sína um að úrslitum 200 knattspyrnuleikja hafi verið hagrætt vegna veðmálastarfssemi. Ef grunurinn reynist á rökum reistur er um að ræða einhverja alstærstu svikamyllu sem hefur átt sér stað í knattspyrnusögunni. Peter Limacher, fulltrúi Knattspyrnusambands Evrópu, sagði þetta langstærsta málið af þessu tagi sem hefur komið upp í Evrópu. Að minnsta kosti þrír leikir sem verið er að rannsaka voru í Meistaradeild Evrópu og tólf í Evrópudeildinni. Þá er einnig verið að skoða leiki sem fóru fram í Þýskalandi, Belgíu, Sviss, Króatíu, Slóveníu, Tyrklandi, Ungverjalandi, Bosníu og Austurríki. Allir leikirnir sem hér um ræðir munu hafa farið fram á þessu ári. Lögreglan framkvæmdi um 50 húsleitir í Þýskalandi, Bretlandi, Sviss og Austurríki í gær, handtók sautján manns og gerði reiðufé og ýmsar eignir upptækar. Knattspyrnusamband Evrópu greindi frá því í september síðastliðnum að það myndi skoða 40 leiki vegna gruns um að úrslitum þeirra hafi verið hagrætt en þeir leikir eru einnig hluti af rannsókninni í Þýskalandi. Saksóknarar í Þýskalandi telja að þeir sem hafi staðið fyrir starfsseminni hafi mútað leikmönnum, þjálfurum, dómurum og starfsmönnum leikja til að hagræða úrslitum leikja og svo veðjað samkvæmt því. Þýsk yfirvöld njóta stuðnings Knattspyrnusambands Evrópu í rannsókninni. „Okkur í Knattspyrnusambandi Evrópu kemur gríðarlega mikið á óvart hversu viðamikil þessi starfssemi hefur verið," sagði Limacher. „En að sama skapi erum við ánægðir með að þetta hafi þó uppgötvast."
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira