Enski boltinn

Shevchenko vonast til að geta hjálpað

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nær Shevchenko sér loks á strik með Chelsea?
Nær Shevchenko sér loks á strik með Chelsea?

Andriy Shevchenko vonast til að geta hjálpað Chelsea en hann er kominn aftur til félagsins eftir lánssamning hjá AC Milan. Úkraínski landsliðsmaðurinn hefur ekki náð sér á strik í þeim leikjum sem hann hefur spilað fyrir Chelsea.

Shevchenko segist vera í góðu formi. „Ég er í mjög fínu formi, það er allt í góðu hjá mér. Ég vona að ég geti hjálpað liðinu. Hópurinn er stór og breiður og við höfum marga góða sóknarmenn," segir Shevchenko.

Sá úkraínski lék undir stjórn Carlo Ancelotti hjá AC Milan síðasta tímabil en Ancelotti er nú tekinn við Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×