Ólafur: Leikurinn nýtist mér mjög vel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. mars 2009 15:57 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari í knattspyrnu valdi í dag leikmannahópinn fyrir leik Íslands gegn Færeyjum í Kórnum þann 22. mars næstkomandi. „Ég ákvað að horfa frekar til yngru leikmennina hér heima þegar ég valdi hópinn," sagði Ólafur. „Annars reyndi ég bara að velja þá bestu." Þar sem leikurinn fer ekki fram á alþjóðlegum leikdegi getur Ólafur ekki valið þá leikmenn sem leika erlendis en fékk þó leyfi hjá þremur félögum til að sækja leikmenn í landsliðið. „Það var auðsótt að fá leyfi hjá þessum félögum. Rúrik er í banni hjá Viborg í Danmörku einmitt þessa helgi og Jóhann Berg er utan aðalliðsins hjá AZ Alkmaar í Hollandi. Þá er GAIS (frá Svíþjóð) í fríi þessa helgi og því gátu þeir Guðmundur Reynir, Eyjólfur og Guðjón komið í leikinn." Hann valdi átta nýliða í hópinn að þessu sinni. „Ég hefði vissulega getað valið aðra leikmenn enda margir sem hafa verið að standa sig vel. En þetta er hópurinn sem ég valdi að þessu sinni." Þetta er í annað árið röð sem Ísland mætir Færeyjum í æfingaleik í Kórnum og segir Ólafur að leikurinn komi til með að nýtast honum vel. „Bæði fæ ég að kynnast þessum strákum betur og þeir fá þá að kynnast landsliðinu. Ég mun til að mynda nota sömu leikaðferð og ég geri í öðrum leikjum og fá þeir því að kynnast því." „Ef þeir verða svo kallaðir í landsliðið síðar hafa þeir þá betri hugmynd um við hverju þeir mega búast." „Ég tel þetta gott fyrirkomulag. Ég hef alla vega lagt hart að því að fá þennan leik hjá Knattspyrnusambandinu og það hefur mætt góðum skilningi."
Fótbolti Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Fleiri fréttir „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Sjá meira