United skuldar 200 milljarða 12. apríl 2009 09:45 Malcom Glazer Nordic Photos/Getty Images
Fjármálasérfræðingur segir að eigendur Manchester United séu í mjög vondum málum ef þeir ná ekki að endurfjármagna gríðarlegar skuldir sínar. Í breska blaðinu News of the World í dag kemur fram að skuldir Glazer-feðga tengdar United nemi um 200 milljörðum króna. Til greina komi að félagið þurfi að selja leikmenn til að standa í skilum með lán Bandaríkjamannanna, eða hreinlega selja klúbbinn. Sagt er að Glazer-feðgar þurfi að borga 14 milljarða af láni sínu árið 2013, 28 milljarða árin 2014, 2015 og 2016 og svo eina risaborgun árið 2017 sem hljóðar upp á yfir 110 milljarða króna. "Í fyrsta skipti er komið í ljós hve gríðarlega þung greiðslubyrði félagsins er næstu níu árin. Glazer-feðgar munu auðvitað reyna að endurfjármagna að einhverju leyti, en það á ekki eftir að reynast auðvelt í ljósi aðstæðna í kreppunni. Því gæti félagið þurft að fjármagna það með sölu á leikmönnum eins og Ronaldo þvert á vilja knattspyrnustjórans. Einnig gætu þeir auðvitað selt félagið á hátt í 200 milljarða, sem gæfi þeim smá hagnað á öllu saman," sagði talsmaður News of the World. Stuðningsmannafélög Manchester United hafa fylgst vel með skuldastöðu félagsins síðan Glazer-feðgar greiddu 150 milljarða fyrir félagið á núvirði árið 2005. Yfirtaka Bandaríkjamannanna var fjármögnuð af stærstum hluta með lánum og þau standa nú í um 130 milljörðum króna. Þar af eru um 100 milljarðar af þeim peningum með veði í félaginu sjálfu og eignum þess. Velta United hefur aukist mikið á síðustu árum og hagnaðurinn verið ágætur sömuleiðis, en hann ku allur hafa þurrkast út og meira til vegna svimandi hárra vaxta sem Glazer-feðgar þurfa að greiða af lánum sínum.
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Íslenski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Sjá meira