Ólafur: Sáttur við þrjú stig á móti erfiðum andstæðingi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2009 22:15 Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks. Mynd/Daníel
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með 2-1 sigur á Þrótti enda liðið búið að gera betur en undanfarin tvö sumur þegar liðið náði aðeins jafntefli í sínum fyrtsa leik. „Það er ánægjulegt að fá þrjú stig í fyrsta leik. Ég er sáttur við að fá þrjú stig í fyrsta leik á móti erfiðum andstæðingi sem við vorum í ströggli með í fyrra. Þeir eru vel skipulagðir og líkamlega sterkir. Ég kvarta ekki yfir þessum úrslitum," sagði Ólafur. Blikar gáfu mikið eftir í seinni hálfeik en stóðust áhlaup Þróttara. „Fótbolti gengur út á það að sækja og verjast. Við vörðumst vel í seinni hálfleik en sóttum ekki eins vel. Við sóttum vel og vörðumst vel í fyrri hálfleik. Tveir hlutir í leiknum voru í góðu lagi í fyrri hálfleik og annar hlutinn var betri en hinn í seinni hálfleik þannig að við fáum þrjá af fjórum," sagði Ólafur spekingslegur. Það fór örugglega um suma leikmenn Blika þegar Þróttur minnkaði muninn í 2-1 eftir aðeins 30 sekúndur í seinni hálfleik. „Þú ferð og talar við liðið þitt og leggur eitthvað upp fyrir seinni hálfleikinn. Mark eftir 30 sekúndur breytti í sjálfu sér ekki okkar plönum en auðvitað vorum við svolítið óöruggir. Við vorum undir fyrstu fimmtán mínúturnar en svo jafnast þetta aðeins. Mér fannst við standast áhlaupið ágætlega. Kristinn Steindórsson og Alfreð Finnbogason skoruðu báðir flott mörk í leiknum og þar gætu leynst markaskorarar liðsins í sumar. „Það er eitt að skora mörk í 2. flokki og annað að skora mörk í meistaraflokki. Þeir nýttu sín færi vel í dag og skoruðu mjög góð mörk. Ég er mjög ánægður með þá," sagði Ólafur. Ólafur tefldi Arnóri Sveini Aðalsteinssyni fram á miðjunni í forföllum Guðmundar Kristjánssonar, sem tók út leikbann. „Arnór getur spilað allstaðar á vellinum, hægri bakvörður, vinstri bakvörður eða hafsent. Hann getur spilað hvar sem er og leysti þessa stöðu frábærlega í dag. Hann leggur upp annað markið og er mjög hreyfanlegur en síðan sjáum við bara til hvernig við púslum þessu í næsta leik. Guðmundur kemur þá úr banni og kemur kannski inn og kannski ekki," sagði Ólafur. Næsti leikur Blika er út í Eyjum og segir Ólafur þessi sigur hjálpa upp á sjálfstraustið en einnig gefa vísbendingar um hvar liðið hans þarf að bæta sig. „Það er alltaf erfitt að fara út í Eyjar en það er ekki ómögulegt að ná í stig þar og við ætlum að undirbúa okkur vel fyrir þann leik," sagði Ólafur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Íslenski boltinn Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Fótbolti Sló met Eiðs Smára Íslenski boltinn Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk Íslenski boltinn Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM Fótbolti Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti „Fólk má hafa sínar skoðanir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn