Enski boltinn

Rafa á skýrslur um 10 þúsund leikmenn

NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum aðstoðarmaður Rafa Benitez hjá Liverpool segir að knattspyrnustjórinn hugsi um fótbolta 24 tíma á sólarhring.

Í viðtali við breska blaðið Sun segir Paco Herrera að Benitez sé ótrúlega skipulagður og fátt komi honum á óvart varðandi mótherja Liverpool.

"Rafa treystir starfsfólki sínu og við urðum okkur alltaf út um nákvæmar upplýsingar um mótherjana. Rafa lætur ekkert koma sér á óvart og hann á gagnabanka sem hefur að geyma nákvæmar upplýsingar um meira en 10,000 leikmenn," sagði Herrera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×