Innlent

Lúðvík sækist ekki eftir endurkjöri

Lúðvík Bergvinsson.
Lúðvík Bergvinsson.
Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sækist ekki eftir endurkjöri í komandi þingkosningum. Hann hefur átt sæti á Alþingi í fjórtan ár.

Tilkynning Lúðvíks:

,,Ég ákvað fyrir nokkru að leita ekki eftir endurkjöri í komandi alþingiskosningum, en á Alþingi hef ég átt sæti frá árinu 1995. Fjórtán ár er langur tími á sama vinnustað.

Þau miklu straumhvörf sem orðið hafa í íslensku samfélagi undanfarna mánuði, gera þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að breytingar verði á skipan Alþingis, enda er þáttur stjórnvalda mikill þegar kemur að ábyrgð á því að fjármálakerfi landsins hrundi.

Ég þakka öllum fyrir þann stuðning og traust sem ég hef notið þann tíma sem ég hef átt sæti á Alþingi. Það eru mikil forréttindi og lærdómur hverjum þeim sem fær að starfa á Alþingi í umboði almennings. Fyrir það vil ég sérstaklega þakka.

Virðingarfyllst

Lúðvík Bergvinsson

Formaður þingflokks Samfylkingarinnar"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×