Enski boltinn

Neville á heimleið vegna meiðsla

Elvar Geir Magnússon skrifar
Nordic photos/Getty images

Hægri bakvörðurinn Gary Neville, fyrirliði Manchester United, hefur þurft að yfirgefa æfingabúðir Englandsmeistarana í Asíu. Neville er á leið aftur til Englands í skoðun en meiðslin eru þó ekki talin mjög alvarleg.

Neville hefur verið þjakaður af meiðslum síðustu ár. Hann lék í rúman klukkutíma í æfingaleik á mánudaginn og málin virtust á réttri leið hjá honum þegar hann meiddist enn og aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×