Innlent

Reykjavíkurbiskup leiður yfir brottrekstri

Valur Grettisson skrifar
Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup.
Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup.

„Kaþólsku kirkjunni á Íslandi þykir leitt að stjórn Landakotsskóla ses. hafi átt í erfiðleikum," skrifar Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup í tilkynningu sem Kaþólska kirkjan sendi frá sér til fjölmiðla.

Tilefnið er brottrekstur Fríðu Regínu Höskuldsdóttur. Henni var sagt upp sem skólastjóra Landakotsskóla. Ekki er óskað eftir því að hún gegni starfinu út uppsagnarfrestinn.

Þar segir orðrétt:

Þó að Kaþólska kirkjan sé eigandi þess húsnæðis sem Landakotsskóli ses. starfar í hefur hún á undanförnum árum samkvæmt reglugerð skólans ekki haft rétt til að hlutast til um rekstur hans.

Kaþólska kirkjan á Íslandi vonar að góð lausn finnist á málum skólans, nemendum, foreldrum þeirra og starfsfólki öllu til heilla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×