Frí frá þingstörfum hvarfla ekki að Þráni Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 13. ágúst 2009 19:08
Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir það ekki hvarfla að sér að taka sér frí frá þingstörfum þó restin af þingflokknum vilji að hann geri það. Borgarahreyfingin var stofnuð fyrir síðustu Alþingiskosningar og á kosninganótt í apríl síðastliðnum, þegar ljóst var að flokkurinn hafði fengið fjóra þingmenn kjörna, lék allt í lyndi. Upp úr sauð hins vegar milli þingmanna eftir að kosið var á Alþingi um aðildarviðræður við Evrópusambandið um miðjan júlí. Síðan þá hefur allur þingflokkurinn ekki komið saman. Fjórir þingmenn eru í þingflokknum en þrír þeirra, þau Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir greiddu atkvæði gegn viðræðunum. Þráinn Bertlesson, fjórði þingmaðurinn, greiddi hins vegar atkvæði með viðræðunum og sagði hina þingmennina vinna gegn stefnu flokksins. Reynt hefur verið að koma á sáttum milli þingmannanna og sérstök nefnd innan hreyfingarinnar stofnuð til þess. Á vefsíðu Borgarahreyfingarinnar segja Þór, Birgitta og Margrét að það liggji beinast við ,,[...] að Þráinn kalli þegar í stað inn varamann í sinn stað og taki sér sjálfur góðan umhugsunarfrest um framtíðaraðkomu sína málefnum borgarahreyfingarinnar." Þráinn vildi ekki koma í viðtal vegna málsins en sagði það ekki hvarfla að sér að taka sér frí þó félagskapurinn í þingflokknum væri leiðinlegur. Þór, Margrét og Birgitta vildu ekki tjá sig um málið en þær sögðu málið alfarið í höndum sáttanefndar hreyfingarinnar. Borgarahreyfingin var stofnuð fyrir síðustu Alþingiskosingar og á kosninganótt í lok apríl lék allt í lyndi í hópnum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira