Leiðsögumaður: Ólafur Ragnar stóð sig eins og hetja Valur Grettisson skrifar 20. ágúst 2009 11:39 Ólafur Ragnar Grímsson féll af hestinum Glæsi. „
Við feðgar fórum með Ólaf Ragnar og frú ásamt fleirum í tveggja tíma reiðtúr," segir hestamaðurinn Magnús Ólafsson, sem leiddi hópinn ásamt syni sínum sem er tamningamaður, um fallegar sveitir Húnaþings. Reiðtúrinn átti eftir að enda hraplega fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, en hann féll af baki Glæsis og axlarbrotnaði undir lok reiðtúrsins. Næsti sjúkrabíll var í um 40 kílómetra fjarlægð. Það kom ekki að sök, Ólafur Ragnar stóð sig eins og hetja að sögn Magnúsar. Skemmtileg leið „Þetta er skemmtileg leið," segir Magnús en hópurinn reið frá Sveinstöðum svo riðu þeir sunnan við Hópið og þaðan vestur. Það var ekki fyrr en hópurinn var á leiðinni til baka sem þeir fara yfir malarveg. Ólafur var á hestinum Glæsi, sem er kominn undan Gammi frá Steinnesi. Þegar Glæsir tölti yfir malarveginn virðist hann hafa stigið ofan í holu á veginum og féll þá við. Ólafur Ragnar datt af baki beint á vinstri öxlina með þeim afleiðingum að hann axlarbrotnaði eins og átti eftir að koma síðar í ljós. Stóð sig eins og hetja Aðspurður hvernig Ólafur Ragnar hafi borið sig á meðan beðið var eftir sjúkrabílnum segir hann að flestir menn kenna til þegar þeir axlarbrotna.„En hann stóð sig eins hetja," segir Magnús. „Síðast var það mjög reynd hestakona sem féll af baki," segir Magnús sem er feginn að ekki fór verr og óskar fornvini sínum góðs bata.
Mest lesið Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Sjá meira