Schmeichel: Vidic er lykillinn 4. mars 2009 17:24 Ferdinand og Vidic vinna vel saman í vörn United Nordic Photos/Getty Images
Goðsögnin Peter Schmeichel, sem á árum áður stóð í marki Manchester United, fer fögrum orðum um varnarlínu liðsins í pistli í breska blaðinu Daily Mail í dag. Daninn hrífst mjög af markverðinu Edwin van der Sar sem haldið hefur marki sínu hreinu í fjórtán deildarleikjum í röð. "Þegar velja á markvörð í lið Manchester United þarf að svara eftirfarandi spurningum. Er tækni hans nógu góð? Er hann nógu hugaður? Er hann nógu sterkur andlega og er hann nógu skipulagður og með nóg sjálfstraust?" segir Schmeichel. "Van der Sar hefur allt þetta. Ég spilaði landsleiki á móti honum og ég var alltaf hrifinn af honum. Hann er miklu meira en maður sem getur varið skot. Það geta allir markverðir sem spila á hæsta stigi. Þú verður að hafa meira en það til að spila með Manchester United og það sem ég hrífst mest af er fótavinna hans," sagði Schmeichel. Hann nefndi þá Van der Sar, David Seaman hjá Arsenal og Neville Southall hjá Everton sem bestu markverði sem hann spilaði á móti á Englandi á sínum tíma. Það er ekki bara Van der Sar að þakka að vörn United hefur verið óvinnandi vígi að undanförnu og Schmeichel sparar hluta af hrósi sínu fyrir miðverði liðsins - ekki síst Nemanja Vidic. "Ég verð að segja að Vidic er algjör lykilmaður. Hann er varnarmaður sem hugsar fyrst um einföldu hlutina og hann á stóran þátt í að Rio Ferdinand er orðinn einn af þremur bestu miðvörðum heimsins. Það er líka Vidic að þakka að Johnny Evans lítur út fyrir að hafa spilað í vörn United í 100 ár," sagði Schmeichel.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Sjá meira