Ráðherra rólegur í skugga málshöfðana 19. ágúst 2009 04:30 Erlendir kröfuhafar efast margir um neyðarlögin sem sett voru í bankahruninu, þau mismuni kröfuhöfum eftir þjóðerni. Viðskiptaráðherra segist anda með nefinu yfir þessu. Ótvírætt mat lögfræðinga sé að þau standist. Myndin sýnir þegar höfuðstöðvum Landsbankans var lokað 6. október síðastliðinn. Fréttablaðið/GVA
Frá því að neyðarlögin voru sett síðasta haust hefur legið fyrir að það myndi reyna á lögmæti ýmissa aðgerða sem farið var í fyrir dómstólum, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Hann segist „anda með nefinu" yfir þeim tíðindum, sem fréttamiðlar greindu frá í gær, að lögfræðistofan Norton-Rose segði að einhverjir hefðu nú þegar hafið mál gegn íslenska ríkinu og að allt að sextíu erlendar fjármálastofnanir gætu gert slíkt sama. Gylfi segir alltaf hafa verið gert ráð fyrir þessu. „Enda hafa menn legið yfir stöðu íslenska ríkisins í þessum málum. En við höfum reynt hvað við getum að ná samningum frekar en að láta menn útkljá mál sín fyrir dómstólum og ég tel að það hafi tekist í ýmsum mikilvægum álitamálum, þótt það sé örugglega ekki raunin í þeim öllum." Ráðherrann minnir á að með „þeirri lausn sem fundin var varðandi Íslandsbanka og Kaupþing [um að erlendir kröfuhafar eignist þá þegar gömlu bankarnir verða teknir yfir] ætti að vera hægt að komast hjá því að kljást fyrir dómstólum um það hvernig staðið var að mati á eignunum sem fóru á milli gömlu og nýju bankanna". Þetta hafi verið „eitt af því sem hefði ella nær örugglega endað að einhverju marki fyrir dómstólum". Hins vegar sé fyrirsjáanlegt að höfðað verði mál út af öðrum málum. Þá verði tekið á því. „En það má nú líka hafa í huga að lögfræðifyrirtæki beita ýmsum aðferðum til að ná fram hagstæðari samningum fyrir sína umbjóðendur, meðal annars hótunum um málsóknir. Ég lít nú á þessa undarlegu skoðanakönnun Norton-Rose svolítið í því ljósi. Þetta er frekar samningatækni en eitthvað annað, þótt ég dragi ekki í efa að þeir séu fulltrúar fyrir marga sem gætu hugsað sér að fara í mál," segir Gylfi. Hvernig kemur það heim og saman að ríkið hafi reynt að ná samningum við sem flesta, ef allt að sextíu bankar eru að íhuga að höfða mál gegn íslenska ríkinu? „Það er nú fljótt að koma, því það eru oft margir sem eiga kröfur á einstök fyrirtæki og auðvitað margir sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni út af neyðarlögunum. En það þarf ekki að segja mikið um líkurnar á því að kröfur þeirra nái fram að ganga, þótt einhverjir tugir íhugi málssókn," segir Gylfi. Spurður hvort líklegt sé að neyðarlögin standist, segir Gylfi það „ótvírætt mat" þeirra lögfræðinga, sem hafa skoðað þau fyrir íslenska ríkið, að svo sé. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira