Enski boltinn

Anelka frá keppni í þrjár vikur

Nordic Photos/Getty Images

Franski framherjinn Nicolas Anelka hjá Chelsea getur ekki leikið með liði sínu næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá franska knattspyrnusambandinu.

Anelka er meiddur á tá og þetta þýðir að hann mun ekki verða í liði Chelsea þegar liðið mætir Liverpool í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×