Gana heimsmeistari U-20 liða Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2009 11:00 Leikmenn Gana fagna titlinum sínum í gær. Nordic Photos / AFP
Gana varð í gær heimsmeistari landsliða skipuð leikmönnum 20 ára yngri eftir sigur á Brasilíu í úrslitaleik HM sem haldið var í Egyptalandi í þetta sinn. Staðan í leiknum var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og þurfti því vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Vítaspyrnukeppnin var hádramatísk. Brasilía komst í 3-2 en bæði lið klikkuðu á sínum spyrnu í fjórðu umferð. Þar með átti Brasilía möguleika á að tryggja sér titilinn með sinni spyrnu í fimmtu umferð. Allt kom fyrir ekki. Maicon skaut hátt yfir og Ganamenn skoruðu úr fimmtu spyrnu sinni. Staðan var því jöfn, 3-3, og keppnin því komin í bráðabana. Brasilíumaðurinn Alex Teixeira fór á punktinn og lét verja frá sér. Það kom því í hlut Agyemang-Badu að tryggja Gana sinn fyrsta heimsmeistaratitill í þessum aldursflokki og tókst honum það. Gana var þar með fyrsta Afríkuríkið til að vinna mótið. Útlitið var reyndar nokkuð dökkt fyrir Gana í leiknum því skömmu fyrir hálfleik var einn leikmaður liðsins, Daniel Addo, rekinn af velli með rautt spjald. Leikmenn Gana gerðu þó vel í sínum varnarleik í síðari hálfleik og komu í veg fyrir að Brasilíumenn næðu að skora þrátt fyrir að hafa fengið nokkur góð færi til þess. Ungverjaland varð í þriðja sæti mótsins eftir sigur á Kosturíku í leik um þriðja sætið. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 en ekkert mark var skorað í framlengingunni. Leikmönnum Kosturíku tókst ekki að skora úr einni einustu spyrnu í vítaspyrnukeppninni í fjórum tilraunum og dugði því Ungverjum að nýta tvær af sínum þremur spyrnum.
Fótbolti Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Sjá meira