Innlent

Útsvar Hannesar ekki í samræmi við tekjur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson var með 10.3 milljónir í árstekjur.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson var með 10.3 milljónir í árstekjur.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að upplýsingar Skattstjórans í Reykjavík um útsvar hans, gefi ekki rétta mynd af þeim tekjum sem hann vann sér inn á síðasta ári.

Í tekjublaði Vísis kemur fram að tekjur Hannesar hafi numið 1.727.655. Tekjurnar eru reiknaðar útfrá greiddu útsvari viðkomandi, en þær upplýsingar eru aðgengilegar hjá Skattstjóra.

„Því miður var áætlað á mig, því að endurskoðandi minn hafði sent framtal mitt einum eða tveimur dögum of seint inn," segir Hannes sem var erlendis þegar framtalinu var skilað.

Árstekjur Hannesar voru að hans sögn 10,3 milljónir eða 858.333 krónur á mánuði. Hefur það nú verið leiðrétt.




Tengdar fréttir

Tekjur 1000 Íslendinga: Skoðaðu frítt á Vísi

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var með hæstu tekjur allra Íslendinga á síðasta ári samkvæmt álagningarskrá Ríkisskattstjóra sem lögð var fram í dag. Hreiðar Már var með rúmar 35 milljónir á mánuði í tekjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×