Jeppahópur bjargaði Spánverjum úr Krossá Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 18. ágúst 2009 14:14 Krossá - mynd úr safni. Mynd/JAK „
Ef bíllinn hefði farið tuttugu metrum lengra þá hefði hann oltið og óvíst hvort hægt hefði verið að bjarga fólkinu," segir Hilmar Viktorsson, leiðsögumaður hjá ferðaskrifstofunni Atlantik. Það var fyrir snarræði bílstjóra ferðaskrifstofunnar sem tókst að bjarga tveimur spænskum ferðamönnum sem lentu í sjálfheldu úti í Krossá um hádegisbilið í dag. Ferðamennirnir höfðu ekið út í Krossá á óbreyttum bílaleigubíl og tekið að reka með ánni. Að sögn Hilmars rak þá um 250 metra og var bíllinn nokkrum sinnum að því kominn að velta. Ferðaskrifstofan Atlantik var á leið með hóp ítalskra ferðamanna til Þórsmerkur á sex sérútbúnum jeppum þegar bílstjórarnir urðu varir við hrakfarir ferðamannanna út í ánni. Þeir hófu þegar björgunaraðgerðir og eltu tveir jeppanna bílinn meðfram straumharðri ánni. Annar keyrði upp fyrir bílinn til að taka strauminn af honum og hinn keyrði í hliðina á bílnum til að stöðva hann, en ökumennirnir samræmdu sig með talstöðvum. Spánverjarnir tveir sluppu ómeiddir og bíllinn var í ágætu lagi, þó hann hafi beyglast örlítið og nokkuð flætt inn í hann að sögn Hilmars. Aðspurður hvernig ítölsku ferðamönnunum hafi fundist að verða vitni að hasarnum segir Hilmar: „Þeir eru bara í hálfgerðu sjokki, en hafa gaman af að hafa upplifað þetta fyrst allt fór vel."
Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Fleiri fréttir „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Sjá meira