Vill ljúka þinghaldi í lok þessarar viku 18. ágúst 2009 04:45 forseti alþingis Ásta Ragnheiður útilokar ekki að störfum þings verði lokið fyrir helgi. Icesave-málið verður í forgangi, og rætt á miðvikudag.fréttablaðið/anton
Forseti Alþingis segist enn binda vonir við að yfirstandandi sumarþing ljúki störfum fyrir næstu helgi. Forsetinn, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fundaði með formönnum þingflokkanna í gær. Fyrir fundinn hafði hún vonast til að Icesave-málið yrði lagt fram í dag, en „niðurstaðan varð sú að ég kom til móts við stjórnarandstöðuna. Hún fær lengri frest til að skila nefndaráliti um Icesave og umræðan byrjar ekki fyrr en á miðvikudagsmorgun." „Mjög mikilvægt er fyrir þingið að okkur takist að ljúka þessu þinghaldi í lok vikunnar," segir Ásta. „Nýtt þing er að hefjast 1. október og það á eftir að vinna alla vinnuna fyrir það. Í raun hefði átt að vera septemberþing, en ég hef ákveðið að fella það niður. Hér er starfsfólk sem þarf að huga að og á sín réttindi. Það hefur ekki komist í sitt lögbundna sumarfrí." Ómögulegt sé að segja hvort störfum ljúki í vikunni, úr því sem komið er. „En menn úr stjórnarandstöðu hafa lýst yfir vilja til þess. Þingið mun í það minnsta klára Icesave-málið, bandorm um breytingar á lögum um stjórnarráðið og líklega gera ráðstafanir í ríkisfjármálum. Önnur smámál gætu komist í gegn að auki úr nefndum. Verði Icesave-málið og bandormur um stjórnarráð samþykkt standa fjórtán stjórnarfrumvörp eftir sem bíða afgreiðslu Alþingis, samkvæmt heimasíðu þingsins. Ásta segir að þau verði ekki afgreidd. Sumarþingið hefur staðið síðan 15. maí. Guðbjartur Hannesson, þáverandi forseti Alþingis, sagði í apríl að það ætti að standa í „nokkrar vikur". klemens@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Sjá meira