Hátt í tuttugu unglingar í meðferð á BUGL vegna offitu 28. nóvember 2009 18:57
Hátt í tuttugu unglingar sem glíma við offitu hafa verið í meðferð hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans undanfarið ár meðal annars vegna þunglyndis, kvíða og annarra sálrænna kvilla sem eru fylgifiskar offitu. Mörg þeirra eru 20 til 30 kílóum of þung, sum jafnvel enn þyngri. Hátt í hundrað börn allt frá 3ja til 17 ára sem glíma við offitu bíða nú eftir meðferð á Landspítalanum. Sum þeirra á aldrinum 13 til 17 ára eru illa haldin og geta verið tuttugu til þrjátíu kílóum of þung, jafnvel þyngri. Mörg glíma við ýmsa fylgikvilla svo sem þunglyndi, kvíða, sykursýki, stoðgrindarvanda og annað. Þessum ungmennum er veitt meðferð á barna og unglingageðdeild Landspítalans. Ósk Sigurðardóttir er yfiriðjuþjálfi þar. „Það er í rauninni allt daglegt líf farið úr skorðum. Þau eru mörg byrjuð að einangra sig. Vilja ekki mæta í skólann og farin að einangra sig þegar þau koma heim og eru til dæmis mikið í tölvunni. Þau eru vanvirk á allan hátt og hætt að taka þátt í hreyfingu," segir Ósk Sigurðardóttir, yfiriðjuþjálfi á BUGL. Ósk segir marga þætti valda offitu en þó sé hreyfingarleysi og aukin tölvunotkun mjög áberandi meðal þessa hóps. „Þau eiga kannski ekki mjög marga vini. Tölvan er til staðar." „Þetta er auðveld leið. Þú þarft ekki að fara út," segir Ósk. Meðferðin gengur út á matardagbók og sálfræðimeðferð sem hjálpar þeim að takast á við vandann. En foreldrum er einnig veitt ráðgjöf. „Við ráðleggjum þeim að passa upp á mataræði unglinganna. Það eru þau sem kaupa inn og það eru líka þau sem vita hvað er temmilegt að borða," segir Margrét Gísladóttir, yfirgeðhjúkrunarfræðingur á BUGL. Á einu ári hafa 20 ungmenni notast við þessa meðferð með góðum árangri.
Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent „Við vitum að áföllin munu koma“ Innlent Fleiri fréttir „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Sjá meira