Umfjöllun: Svart og hvítt hjá KR-ingum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. maí 2009 14:07 Úr leiknum í dag. Mynd/Daníel
KR byrjar vel í Pepsi-deildinni í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Fjölni í opnunarleik mótsins í gær. KR-ingar lentu reyndar undir í fyrri hálfleik en tóku sig saman í andlitinu í þeim síðari og unnu sanngjarnan 2-1 sigur. Það var hins vegar heldur ósanngjörn meðferð sem gestirnir úr Grafarvoginum fengu undir lok leiksins. Hinn átján ára Aron Jóhannsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir afar litlar sakir í uppbótartíma leiksins. Hann var dæmdur brotlegur fyrir að toga Guðmund Pétursson niður en hann var þá við það að komast einn gegn markverði Fjölnismanna. „Ég sá hann ekki brjóta af sér," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis. „Dómarinn var 2-3 metrum frá atvikinu en lætur aðstoðardómarann - sem er 30 til 40 metrum frá - reka manninn út af. Ég set stórt spurningarmerki við það." Ásmundur sagði ungu leikmennina sína fá slæma meðferð í leiknum en annar átján ára Fjölnismaður, Geir Kristinsson, fékk áminningu snemma leiks. „Það var fyrir mjög litlar sakir. Á sama tíma fengu leikmenn KR viðvörun og þeim sagt að passa sig. En Geir og Aron eru ungir og óreyndir og auðveldara að gera eitthvað við þá." Sem fyrr segir komst Fjölnir yfir í fyrri hálfleik og átti svo tök á því að komast í 2-0 snemma í þeim síðari er Aron slapp einn inn fyrir vörn KR. Hann skaut hins vegar yfir markið. Aðeins mínútu síðar kom jöfnunarmark KR og stuttu síðar sigurmark Jónasar Guðna Sævarsson, fyrirliða KR. „Eftir dauðafærið gáfum við eftir og þeir skoruðu. Eftir það óx þeim ásmegin en loftið fór úr okkur." Logi Ólafsson, þjálfari KR, var ánægður með stigin þrjú en ekki frammistöðuna í fyrri hálfleik. „Við töpuðum nánast öllum tæklingum í vörninni og boltinn gekk ekki vel á milli manna. Við ræddum svo málin í leikhléinu og komumst að því að það var engin ástæða til að vera í neinu stressi. Við þurftum bara að gera það sem við erum góðir í en það er að spila boltanum. Við skoruðum svo tvö mörk sem komu bæði eftir laglegan samleik." Logi segir að þeir geri þá kröfu að vinna Fjölni á heimavelli. „Það hefði verið gríðarlega slæmt að tapa. Undir venjulegum kringumstæðum eigum við að vinna Fjölni á heimavelli. Sem betur fer tókst það." KR hefði vel getað skorað fleiri mörk undir lok leiksins og hefði sigurinn hæglega getað orðið stærri. Fjölnir fékk einnig fáein tækifæri til að jafna metin en allt kom fyrir ekki. Sanngjarn sigur KR er niðurstaðan. KR - Fjölnir 2-1 0-1 Jónas Grani Garðarsson (33.) 1-1 Björgólfur Takefusa (56.) 2-1 Jónas Guðna Sævarsson (63.) KR-völlur. Áhorfendur: 1899 Dómari: Jóhannes Valgeirsson (6)Skot (á mark): 18-9 (11-4)Varin skot: Stefán Logi 3 - Þórður 8.Horn: 9-4Aukaspyrnur fengnar: 11-19Rangstöður: 3-1KR (4-4-2): Stefán Logi Magnússon 7 Skúli Jón Friðgeirsson 6 Bjarni Guðjónsson 6 Grétar Sigurðarson 7 Jordao Diogo 6 Óskar Örn Jónsson 5 Baldur Sigurðsson 6 (74. Guðmundur Pétursson -)Jónas Guðni Sævarsson 7 - maður leiksins Gunnar Örn Jónsson 6 (62. Atli Jóhannsson 6) Björgólfur Takefusa 7 (84. Guðmundur Benediktsson -) Prince Rajcomar 6Fjölnir (4-5-1): Þórður Ingason 7 Gunnar Valur Gunnarsson 5 Ólafur Páll Johnson 5 Geir Kristinsson 5 Vigfús Arnar Jósepsson 5 (85. Andri Valur Ívarsson -) Aron Jóhannsson 7 Illugi Gunnarsson 6 (80. Ásgeir Aron Ásgeirsson -) Gunnar Már Guðmundsson 4 Magnús Ingi Einarsson 5 Tómas Leifsson 4 (75. Guðmundur Karl Guðmundsson -) Jónas Grani Garðarsson 6
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Jónas: Skora á Bjarna að raka af sér hárið Jónas Guðni Sævarsson var vitanlega ánægður með 2-1 sigur sinna manna í KR á Fjölni í opnunarleik Pepsi-deildar karla í dag. 10. maí 2009 20:00 Mest lesið „Feginn að þú lifðir krabbameinið af svo þú gætir séð skítaliðið þitt fara niður“ Handbolti Farin frá Braga eftir aðeins hálft ár Fótbolti Mest lesið í innlenda sportinu: Danskar bullur, oddaleikur á Króknum og miskátir hlauparar Sport Segir dómarana bara hafa verið að giska Enski boltinn „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Íslenski boltinn Alveg sama um úrvalsdeildina og ætlar í veiði eftir HM Sport Alls ekki síðasti leikur Semenyo Enski boltinn Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Enski boltinn Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Enski boltinn Heimsmeistarinn ekki hrifinn af HM yfir jólahátíðina Sport Fleiri fréttir „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Sjá meira
Jónas: Skora á Bjarna að raka af sér hárið Jónas Guðni Sævarsson var vitanlega ánægður með 2-1 sigur sinna manna í KR á Fjölni í opnunarleik Pepsi-deildar karla í dag. 10. maí 2009 20:00