Innlent

Ölvaður veiðimaður vistaður í fangageymslu

MYND/GVA

Lögreglan á Selfossi handtók í gærkvöldi ölvaðan mann, sem hafði ekið jeppa sínum út af Nesjavallavegi og sat þar fastur.

Hann leitaði eftir aðstoð vegfarenda við að draga jeppan upp á veginn, en þeim leist ekkert á ástand hans og kölluðu á lögreglu, sem vistaði hann í fangageymslum í nótt.

Maðurinn var að koma úr veiðiferð, en ekki fer sögum af aflabröðgum hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×