Merkingar eðlilegar á litlum markaði 15. ágúst 2009 07:00 Framleiðandi kjötvöru segir verslunina hafa það í hendi sér að bjóða afslætti af forverðmerktri vöru. Mynd/E.ÓL .
Það er óraunhæft að leggja af forverðmerkingar á kjötvöru, segir Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS). „Það er gríðarleg samkeppni á milli verslana eins og sjá má í auglýsingum alla daga." Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um undanfarna daga telja Neytendastofa, Alþýðusambandið og talsmaður neytenda það ekki standast samkeppnislög að forverðmerkja vöru. Samkeppniseftirlitið rekur stjórnsýslumál til að fá úr því skorið hvort svo sé. Málin snúa að smásöluverslunum og hópi kjötframleiðenda og birgja. Þeir sem sinna samkeppnismálum eru almennt þeirrar skoðunar að leggja skuli niður forverðmerkingar og það aðeins tæknilegt atriði standi í veginum. Kjötmarkaðurinn á Íslandi er hins vegar of lítill til að gera grundvallarbreytingar á dreifingu vörunnar og það hefði aukinn kostnað í för með sér fyrir neytendur, segir Steinþór. „Umræða um forverðmerkingar á matvöru er á villigötum. Þó að leiðbeinandi verð sé gefið upp útilokar það ekki verðsamkeppni. Verslunin getur, ef hún vill, boðið afslátt af þessari vöru eins og hverri annarri." Margir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja að forverðmerkingar viðgangist vegna þess að framleiðendur ráði ekki yfir tækni til að vigta og pakka vöru eftir nákvæmri þyngd. Steinþór segir þetta að nokkru leyti rétt. „Það er hægt að breyta þessu en hér eru litlir framleiðendur sem ráða ekki við að kaupa dýrasta vélbúnað sem gerir þetta mögulegt. Verði okkur gert að breyta þessu af samkeppnisyfirvöldum óttast ég að framleiðendum fækki, með neikvæðum áhrifum á samkeppni." Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, bendir á að hver og einn kaupmaður gæti sagt framleiðendum vöru að hann hygðist selja á ákveðnu verði; sem síðan yrði verðmerkt í samræmi við það. „Það hlýtur að vera hægt að fá verðið uppgefið frá smásalanum þó að pakkningar, tækin og fjárfestingin séu hjá framleiðandanum." Steinþór segir þetta fullkomlega óraunhæft. „Við getum ekki boðið verslunum að verðmerkja fyrir hverja og eina. Þá yrðum við að halda margfaldan lager, einn fyrir hvern smásala með sér verðmerkingu. Þetta er ekki framkvæmanlegt."svavar@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira