Lögreglan fékk 300 þúsund 15. ágúst 2009 04:00 Lögreglumenn stóðu í ströngu í anddyri Seðlabankans í búsáhaldabyltingunni í desember. Mynd/Arnþór
Lögreglumál Bankastjórn Seðlabanka Íslands styrkti í janúar starfsmannafélag lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 300 þúsund krónur. Með þessu vildu bankastjórar þakka lögreglumönnum sem tókust á við mótmælendur í anddyri bankans í mótmælum fyrr í vetur. „Ég lít ekki svo á að þarna hafi menn verið að styrkja lögregluna, heldur viljað koma á framfæri persónulegu þakklæti til manna sem stóðu þarna í eldlínunni,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Reglur gilda um móttöku lögreglumanna á gjöfum, en þetta fellur ekki undir þær, að mati Stefáns, þar sem gjöfin hafi verið til starfsmannafélagsins, ekki embættisins eða lögreglumannanna sjálfra. „Mér finnst það hið eðlilegasta mál ef menn eru ánægðir með lögregluna, og ekkert óeðlilegt við það ef menn vilja fylgja því eftir,“ segir Stefán. Ýmis fyrirtæki hafa styrkt starfsmannafélagið í gegnum tíðina, til dæmis með matar- eða sælgætisgjöfum fyrir fjölskyldudaga, segir Stefán. Ingimundur Friðriksson, einn þáverandi seðlabankastjóra, hafði milligöngu um gjöfina, en ákvörðun um hana var tekin af bankastjórn Seðlabankans, samkvæmt upplýsingum frá bankanum. Aðrir styrkir bankans hafi aðallega verið til mannúðar- og líknarfélaga, auk samtaka á listasviði.
Mest lesið Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Fleiri fréttir Kennarar eyði óheyrilegum tíma í að búa til eigið efni Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Sjá meira